Síða 1 af 2

Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 25 Ágú 2013, 16:07
frá Stjórn MBKÍ
Mercedes-Benz klúbbur Íslands og Askja verða með stórsýningu í húsnæði Öskju laugardaginn 31. ágúst & sunnudaginn 1. september.

Tilefni sýningarinnar er 10 ára afmæli Mercedes-Benz klúbbs Íslands & frumsýning Öskju á Mercedes-Benz CLA og nýjum E-Class (W212 Facelift).

Á staðnum verður að finna hluta af glæsilegustu Benzum landsins, bæði gömlum og nýjum.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Opnunartími:
Laugardagurinn 31. ágúst - frá kl. 10:00 til 16:00
Sunnudagurinn 1. september - frá kl. 12:00 til 16:00

Staðsetning Öskju á kortavef Já:
http://ja.is/kort/?q=B%C3%ADlaumbo%C3%B ... ype=aerial" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Stórsýning MBKÍ - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 29 Ágú 2013, 22:40
frá gmg
Nokkrir gullmolar byrjaðir að mæta uppí Öskju, þetta verður flott um helgina, allir að mæta og skoða gamla og nýja Mercedes Benz bíla ;-)

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 30 Ágú 2013, 16:10
frá Benz
Kom þarna áðan en sá bara einn Benz gullmola.Vondandi verða bílar þarna sem maður hefur ekki séð lengi.

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 30 Ágú 2013, 22:59
frá gmg
Benz skrifaði:Kom þarna áðan en sá bara einn Benz gullmola.Vondandi verða bílar þarna sem maður hefur ekki séð lengi.
Bílarnir eru faldir, sýningin byrjar á morgun :tumbsup2:

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 01:33
frá Benni
Í meðfylgjandi hlekk má sjá auglýsingakápu Öskju sem verður utan um Morgunblaðið laugardaginn 31. ágúst:

https://www.dropbox.com/s/r5zapb3jm7wn2 ... 202013.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 09:42
frá gmg
Benni skrifaði:Í meðfylgjandi hlekk má sjá auglýsingakápu Öskju sem verður utan um Morgunblaðið laugardaginn 31. ágúst:

https://www.dropbox.com/s/r5zapb3jm7wn2 ... 202013.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er flott, en ekkert í Fréttablaðinu mest lesna blaðinu :roll:

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 09:43
frá gmg
Og hérna meira : http://www.mbl.is/bill/frettir/2013/08/ ... ingarblad/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 17:31
frá hjalti.g
gmg skrifaði:Og hérna meira : http://www.mbl.is/bill/frettir/2013/08/ ... ingarblad/" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er flott, góður dagur upp í Öskju að baki, mikið af fólki, vona að morgundagurinn verði allavega jafngóður :D

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 18:23
frá BaraBenz
Og hér er fyrstu bíllinn minn sem ég eignaðist þegar ég var 16 ára.

Re: Mercedes-Benz stórsýning - 31. ágúst & 1. september

Innsent: 31 Ágú 2013, 18:41
frá Lárusson
Góður dagur að baki á sýningu klúbbsins í húsakynnum Öskju. Gestir byrjuðu að streyma inn strax og opnað var og var húsið nánast fullt frá kl 10 til kl 1630!

Á morgun verður opið frá 12 til 16 og því enn tækifæri til að sjá gullmolana sem þarna eru til sýnis.