Síða 1 af 2

Grillferð: klúbbsins sumarið 2010

Innsent: 15 Júl 2010, 20:48
frá Stjórn MBKÍ
Í samræmi við áður auglýsta sumardagskrá Mercedes-Benz klúbbs Íslands (MBKÍ), sjá á http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=22G" onclick="window.open(this.href);return false; SUNNUDAGINN 18.júlí 2010.

Hittumst hjá Öskju kl. 16:30.

Þaðan verður lagt af stað kl. 17:00.

Grillað verður í Hvalfirði.

Stjórn
MBKÍ.

ATH! BREYTT DAGSETNING, grillað verður 18.júlí en ekki 17.júlí eins og áður var auglýst!

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 01:19
frá Hlynzi
Ég er boðaður í Borgarnes akkúrat þennan dag, ég næ hugsanlega að flauta á röðina ef ég hitti vel á tímasetningu!

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 09:07
frá GUMMCO
:Driverauto: Rauðhetta mætir

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 09:52
frá Ásgeir Örn
Má taka með sér gest sem er ekki skráður í klúbbinn? :)

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 15:54
frá Reynir Ari
Ásgeir Örn skrifaði:Má taka með sér gest sem er ekki skráður í klúbbinn? :)
jájá minnsta mál.

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 20:04
frá Reynir Ari
Vegna ófyrirséðra aðstæðna verðum við að fresta grillinu fram á sunnudag 18.júlí.2010.

Vonum að sem flestir geti mætt þá.

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 21:22
frá Ásgeir Örn
Reynir Ari skrifaði:Vegna ófyrirséðra aðstæðna verðum við að fresta grillinu fram á sunnudag 18.júlí.2010.

Vonum að sem flestir geti mætt þá.
Æj æj, þá get ég ekki mætt.

Skemmtið ykkur vel. ;)

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina

Innsent: 16 Júl 2010, 22:02
frá BaraBenz
Reynir Ari skrifaði:Vegna ófyrirséðra aðstæðna verðum við að fresta grillinu fram á sunnudag 18.júlí.2010.

Vonum að sem flestir geti mætt þá.
Svolítið óþægilegt þegar breytingar á dagskrá eru gerðar með svo stuttum fyrirvara.

Og ekki er það léleg veðurspá.

Það væri allt í lagi að nefna þessar ófyrirséðu aðstæður.

Seinast þegar dagskrá um hitting var breytt virtist það vera til að einn maður sem væri ókominn til landsins gæti verið með.
Benzari skrifaði:Samkoman hefur verið færð aftur um tvo daga svo bauninn geti mætt!
En hvað með alla hina.

Svona hringlandaháttur með dagskrá er ekki til að auka áhugann, sérstaklega þegar menn vita ekki ástæðuna.

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina - BREYTING

Innsent: 17 Júl 2010, 00:14
frá Reynir Ari
Vil taka það fram að það er ekki verið að fresta grillinu svo að einhver ákveðinn aðili geti komið með.

Það var vesen með aðstöðuna þess vegna þurfum við að taka þessa ákvörðun.

Re: Árleg grillferð klúbbsins verður nú um helgina - BREYTING

Innsent: 17 Júl 2010, 12:53
frá GUMMCO
Veit ekki hvort ég næ þessu þann 18. :(