Síða 1 af 2

Samkoma - 22. febrúar 2010

Innsent: 29 Jan 2010, 17:34
frá Benzari
Aftur höldum við samkomu óvenju snemma í mánuðinum.
Verður líklega allt á kafi í snjó svo það borgar sig að vera inní hlýjunni.


Staður:
Bílastæðið undir Smáratorgi í Kópavogi. Hægt að keyra inn í vesturenda Bónus og í austurenda turnsins. (við The Pier)
.

Stund:
Mánudagurinn 22.febrúar kl. 20:30


HRAÐAKSTUR OG SPÓL Á SVÆÐINU STRANGLEGA BANNAÐ!!
Þá eru menn beðnir um að skilja ekki rusl eftir sig.

[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... g_kort.jpg[/img]

Re: Samkoma 22.febrúar. 20:30

Innsent: 29 Jan 2010, 17:56
frá E-cdi
ég kem á vetrardekkjunum :D

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 31 Jan 2010, 12:32
frá magnuz
mæti á hálfslitnum vetrardekkjum :lol:

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 31 Jan 2010, 14:06
frá Ásgeir Yngvi
já maður þyrftu nú að láta sjá sig svona eins og einu sinni ! Jæja maður mætti nú einu sinni síðasta sumar minnir mig haha.

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 05 Feb 2010, 23:22
frá Petur260E
ef benzinn verður tilbúinn í tæka tíð þá mæti ég á nýsprautuðum og stífbónuðum 260E 4 matic

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 07 Feb 2010, 18:49
frá Hlynzi
Já, ég kemst því miður ekki.

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 21 Feb 2010, 23:08
frá Benzari
Getur farið svo að við hlunkarnir mætum. :Driverauto:

EDIT:
Ljóst að svo verður ekki, flensuskítur í gangi.

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 22 Feb 2010, 20:05
frá J62
Ég mæti og með 1 gest á Benz

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 22 Feb 2010, 21:52
frá Benni
J62 skrifaði:Ég mæti og með 1 gest á Benz
Ánægður með þig, fínn E class Estate :wink:

Annars var þetta bara alveg ágæt mæting í kvöld og ágæt flóra þó svo að W124 eigi nú oftast vinninginn.

Átti ekki von á svona mörgum og þegar ég fór í kvöld eftir um klst. viðveru þá voru um 15 til 16 Benzar búnir að vera á svæðinu (og já A classinn talinn með :mrgreen: ).
Aðrir bílar sem mættu verða að teljast Benz eftirhermur (jú Karl Benz var fyrstur :lol: ) svo að þeir eru ekki taldir með.

Teddi mætti auðvitað ekki :blabla:
:lol:

Tók nokkrar myndir sem ég á eftir að rýna - en tók þær of seint svo að CLinn var farinn :( Pósta myndunum hérna inn við tækifæri ef þær eru þolanlegar...

Re: Samkoma 22. febrúar kl. 20:30

Innsent: 22 Feb 2010, 22:59
frá gmg
Fín mæting, takk fyrir mig :wink: