Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 20 Maí 2009, 23:00
frá hjalti.g
Fínn hittingur, kem kannski með á rúntinn næst
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 20 Maí 2009, 23:30
frá Reynir Ari
Náði ekki að mæta sökum vinnu :'(
Mættu margir ?
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 00:39
frá Benni
Það mættu ekki eins margir og í apríl en þetta var samt góð mæting og rúnturinn á eftir jafnvel enn betri en síðast
Hér eru nokkrar myndir sem ég náði að "berja út úr myndavélinni".
Enn og aftur vantar okkur hirðljósmyndara eftir að Sergio og Þórður A. hættu að mæta á samkomur Þá var Siggi Hamar einnig duglegur að mynda vel en hann hefur heldur ekki sést lengi...
Á eftir að klippa saman myndband, náði ágætis efni en hef ekki tíma í að klippa það núna.
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 06:46
frá JBV
Glæsilegar myndir hjá þér Benni. Hlakka til að sjá myndbandið.
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 12:31
frá jeepson
ég mæti næst á mínum benz. verð nú vonandi kominn með aðra stýrisdælu í hann.
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 14:49
frá magnuz
snilldar samkoma ! hlakka til myndbandsins !
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 18:39
frá jeepson
Myndirnar klikka aldrei hjá þér Benni. en var tekin sami rúntur og síðast?? mér sýnist nú að þið hafið samt stoppað á öðrum stað.
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind
Innsent: 21 Maí 2009, 20:53
frá Benni
Það var farin önnur leið, sést vonandi á myndbandinu þegar ég hef tíma til að klippa það , en við stoppuðum á bílastæðinu við gamla Tollhúsið (rétt hjá Bæjarins beztu ).
Myndirnar eru frekar dapurlegar, notaði bara aulaheldu stillinguna svo að birtan var í ruglinu ....
Það vantar einhvern sem nennir að taka almennilegar myndir, ég skal sjá um myndbandið....
Re: Samkoma miðvikudaginn 20. maí 2009 - við Smáralind