Innsent: 25 Ágú 2008, 23:51
Ég komst ekki 
Spjallvefur Mercedes-Benz klúbbsins á Íslandi
https://mbclub.is/spjall/
Skemmtileg Atliatligu skrifaði:Jæja strákar mínir, ég skeit illilega á mig með samkomu kvöldsins. Það var ekki eins þægilegt og afslappað að mæta á morgunvakt á Bylgjunni með Gissuri Sigurðssyni kl. 05:30 í morgun eftir eins mánaðar sumarfrí og ég átti von á. Af þeim sökum sveif á mig einhver nettur svefnhöfgi upp úr kvöldmat í kvöld og á slaginu 22:38 sló því niður í hausinn á mér að sennilega væri ég að gleyma einhverju. Ég lofa að mæta næst en tek undir með sumum sem hér skrifa að maður veður kannski ekkert eld og brennistein til að norpa í suðvestannepju, regni og trekk úti á bílaplani þótt vissulega sé áhugamálið fullkomlega góðra gjalda vert. Nú þarf að leggjast í rannsóknarvinnu og finna rúmgott og upplýst innanhússbílastæði til afnota um vetur og haust en koma svo saman úti í guðsgrænni náttúrunni að sumarlagi.
Það ber vott um sérstakan smekk, Benedikt H. Rúnarsson, að þú álítir nýju Hagkaupsverslunina í Garðabæ stórglæsilega. Þetta steingráa kjarnorkubyrgi sem er ekki í nokkru samræmi við hverfið við hliðina á er þvílík hrákasmíð að lager Efnaverksmiðjunnar Sjafnar sem þarna stóð frá um það bil 1975 til 1998 (var síðar téð hjólbarðaverkstæði) var hrein unun á að horfa þótt sá hjallur héldi orðið hvorki vindi né vatni. Þarna starfaði undirritaður sem venjulegt lagerskítseiði á lyftara sumurin 1990 og 1991 og grætur enn fögrum tárum yfir minningunum. Já, þá var maður með sítt hár, drakk landa í Mix og hlustaði á Metallica og Slayer! Og hve margir hér lifðu það að starfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, því ágæta opi niður til helvítis!?!
Ég klikka ekki á næstu samkomu, hugheilar kveðjur,
Atli
P.s. Ég hlusta enn á Metallica og Slayer.
atligu skrifaði:Jæja strákar mínir, ég skeit illilega á mig með samkomu kvöldsins. Það var ekki eins þægilegt og afslappað að mæta á morgunvakt á Bylgjunni með Gissuri Sigurðssyni kl. 05:30 í morgun eftir eins mánaðar sumarfrí og ég átti von á. Af þeim sökum sveif á mig einhver nettur svefnhöfgi upp úr kvöldmat í kvöld og á slaginu 22:38 sló því niður í hausinn á mér að sennilega væri ég að gleyma einhverju. Ég lofa að mæta næst en tek undir með sumum sem hér skrifa að maður veður kannski ekkert eld og brennistein til að norpa í suðvestannepju, regni og trekk úti á bílaplani þótt vissulega sé áhugamálið fullkomlega góðra gjalda vert. Nú þarf að leggjast í rannsóknarvinnu og finna rúmgott og upplýst innanhússbílastæði til afnota um vetur og haust en koma svo saman úti í guðsgrænni náttúrunni að sumarlagi.