Síða 1 af 2
Nýr G55 AMG á klakanum
Innsent: 03 Feb 2006, 23:42
frá Spiderman
Mikið gleður það mig þegar ég rekst á nýja G vagna, það var einn blár að reka á fjörur. Ég ber virðingu fyrir mönnum sem kaupa eitthvað annað en Range Rover og Porsche Cayenne

Eru þeir þá orðnir þrír eða jafnvel fleiri

Innsent: 04 Feb 2006, 01:01
frá Ásgeir Yngvi
sweet sweet ride þar á ferð reikna ég með

Innsent: 04 Feb 2006, 01:12
frá ivar
það eru nefnilega alveg nokkrir G vagnar búnir að koma, það er allavega sem ég veit um 4stk, svo er komið dáldið inn af G500
Innsent: 06 Feb 2006, 05:41
frá Benzari
Fyrsti blái AMG G-jeppinn

Innsent: 06 Feb 2006, 10:53
frá siggi_runar

Fleiri G !!!
Innsent: 06 Feb 2006, 13:36
frá Stinnitz
Ónefndur líkamsræktarstöðvareigandi var að fá einn sem er sjúkur. Sá hann númerslausan fyrir utan flugeldasölu Skáta upp á höfða á þrettándanum. Hélt að hann stæði þarna bara og lá á gluggunum og var að virða bílinn vel fyrir mér þangað til stefnuljósin taka upp á því að blikka og þar kom eigandinn
Ég hrósaði bara bílnum og hann var alveg að fíla athyglina, sagðist hafa fengið hann sama dag og sagði að þessi 476 hö væru alveg að virka - svo brunaði hann hraustlega í burtu og sándið var hroðalegt

...hans bíll er sennilega sá flottasti af þessum G-bílum.
En btw. ónefndur olíukóngur skipti sínum út og ég sá hann um daginn á Range Rover

Innsent: 06 Feb 2006, 19:17
frá Spiderman
Stinnitz skrifaði:Ónefndur líkamsræktarstöðvareigandi var að fá einn sem er sjúkur. Sá hann númerslausan fyrir utan flugeldasölu Skáta upp á höfða á þrettándanum. Hélt að hann stæði þarna bara og lá á gluggunum og var að virða bílinn vel fyrir mér þangað til stefnuljósin taka upp á því að blikka og þar kom eigandinn
Ég hrósaði bara bílnum og hann var alveg að fíla athyglina, sagðist hafa fengið hann sama dag og sagði að þessi 476 hö væru alveg að virka - svo brunaði hann hraustlega í burtu og sándið var hroðalegt

...hans bíll er sennilega sá flottasti af þessum G-bílum.
En btw. ónefndur olíukóngur skipti sínum út og ég sá hann um daginn á Range Rover

Þessi umræddi blái bíll er bíllinn hans Bjössa í World Class, ég get nú ekki verið sammála um að hann sé flottari en bíllinn sem Kristinn Björnsson átti

Innsent: 07 Feb 2006, 00:39
frá ivar
mætti einmitt bílnum hans bjössa þegar ég var að koma úr ræktini áðan, sýndist hann vera svartur reyndar en það var dimmt, bara flottur, en neinei mér finnst bíllin sem nesradíógæjinn á ennþá flottastur, (gamli kristinns)
Innsent: 09 Feb 2006, 13:03
frá Stinnitz
Bíllinn hans Bjössa er dökkblár með "Ferrari" tan leðri. Mér finnst svona sprautaðar felgur eins og er á hans koma mjög vel út. En það er umdeilt smekksatriði... Annars er hans bíll og Kristins nánast eins utan við litinn og felgur..