Síða 1 af 2

Bíltúr á GBenz

Innsent: 08 Júl 2012, 12:04
frá JónasH
Til að menn sjái GBenz og Unimog menn séu á lífi:
http://www.pbase.com/jonash/kerlingafjoll
https://www.youtube.com/watch?v=JwWZHwU0iyQ

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 10 Júl 2012, 13:44
frá RagnarHeidar
Skellti mér á Fjallabak í síðustu viku og var tvær nætur í Landmannalaugum. Keyrði Landmannaleið og Dómadal, í Landmannahelli, upp í Hrauneyjar, í Veiðivötn og Jökulheima. Kláraði svo Fjallabaksleið nyrðri niður í Hólaskjól. Góður túr á góðum ferðabíl.

[img]https://lh5.googleusercontent.com/-yjWJ ... 053102.JPG[/img]

Fleiri myndir hér
https://picasaweb.google.com/ragnarheid ... directlink

Komum svo að þessari föstu rútu við Réttarhnúk. Lét félaga mína í Björgunarsveit Hafnarfjarðar sjá um að kippa henni upp með Amerísku dráttavélinni.


Um næstu helgi verður svo "skotist" í Ófeigsfjörð á Ströndum.

kveðja
Ragnar

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 10 Júl 2012, 14:36
frá JónasH
RagnarHeidar skrifaði:Skellti mér á Fjallabak í síðustu viku og var tvær nætur í Landmannalaugum. Keyrði Landmannaleið og Dómadal, í Landmannahelli, upp í Hrauneyjar, í Veiðivötn og Jökulheima. Kláraði svo Fjallabaksleið nyrðri niður í Hólaskjól. Góður túr og góðum ferðabíl.

[img]https://lh5.googleusercontent.com/-yjWJ ... 053102.JPG[/img]

Fleiri myndir hér
https://picasaweb.google.com/ragnarheid ... directlink

Komum svo að þessari föstu rútu við Réttarhnúk. Lét félaga mína í Björgunarsveit Hafnarfjarðar sjá um að kippa henni upp með Amerískru dráttavélinni.


Um næstu helgi verður svo "skotist" í Ófeigsfjörð á Ströndum.

kveðja
Ragnar
Það vantar "like" takka á spjallið hjá okkur.

kv. Jónas

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 10 Júl 2012, 17:24
frá BaraBenz
JónasH skrifaði:
Það vantar "like" takka á spjallið hjá okkur.

kv. Jónas
Það er "like" takki í efsta innleggi hvers þráðar, ekki hverju innleggi. Líka takki fyrir Twitter.

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 10 Júl 2012, 19:02
frá sveinn
Falleg og skemmtileg leið. Ég fór einmitt Fjallabakið á gamla gelandernum í ágúst 2009:

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 25 Júl 2012, 23:47
frá msditlevsen
Fór i smábiltur (á minu Legendewagen áuðvitað) við Grimsnes og nágranni, sá þar 4 stk eldri Geländewagen á ferð. Allar var pakkað með fólk og dót og synist að vera i skemtileg sumarferðalag. Reynda gerast þetta ekki betur en i G benz.
Ég ték þetta sem tekn um að G folkið er sprell lifandi!!

Mbk
Martin

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 27 Júl 2012, 23:48
frá Gunnar Örn
Jú þetta passar þarna voru á ferð nokkrir G-sjúklingar ásamt fjölskydum sínum á leið á hálendi Íslands, við erum nýlentir heima aftur eftir góðan túr.
Þarna voru á ferð A4079, R1623, R455 og IJ512 í ævintýralegri ferð.

Myndir koma.

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 30 Júl 2012, 01:22
frá Gizmo

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 30 Júl 2012, 14:07
frá sveinn
Flottar myndir hjá þér Bjarni, og þetta hefur verið skemmtileg ferð og gaman að sjá nokkra svona G-Benza saman:)

Væri þó gaman að vita meira um hvar þið eruð á myndunum.

Re: Bíltúr á GBenz

Innsent: 30 Júl 2012, 14:53
frá RagnarHeidar
Glæsilegar myndir Bjarni. Keyrði Emstruleiðina og áfram um Suður Fjallabak austur fyrir Mýrdalsjökul um helgina. Hérna eru tvær myndir frá Mælifellssandi með Mælifell í baksýn og svo af vaðinu yfir Hólmsá.

[img]https://lh5.googleusercontent.com/-Zirp ... 5797_o.jpg[/img]

[img]https://lh5.googleusercontent.com/-mp5- ... 4322_o.jpg[/img]

Svo er hér ein mynd við vegenda við Hvalá í Ófeigsfirði á Ströndum. Fór þangað um miðjan Júlí og gekk svo áfram í norður í 2 daga heim í Reykjarfjörð í eitt stykki brúðkaup.

[img]https://lh6.googleusercontent.com/-Ep0f ... 143141.JPG[/img]

Kveðja
Ragnar