Síða 1 af 1

G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 27 Jan 2012, 15:41
frá Benni
Í fyrra hóf MB herferð í að kynna G-class aftur í Ástralíu og var þá ákveðið að keyra svokallaðan Canning Stock Route sem er ku vera ansi erfiður yfirferðar (endalaust "þvottabretti").
Reyndist þetta vera pínu PR klúður hjá Benz þar sem höggdeyfarnir gáfu sig á "standard" bílunum og þurfti að skipta um þá. Að öðru leyti þá var þetta ekkert mál fyrir G-Class (höggdeyfarnir í G-Professional eru af annari gerð og stóðust raunina).


Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 27 Jan 2012, 17:36
frá JBV
Gaman að þessum þætti :D Ekkert dregið undan það sem miður fer og óhöppin festast sum hver á filmu. :D

Þáttarstjórnandinn góður; ,,Zu germans are everywhere" :lol:

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 28 Jan 2012, 00:11
frá sveinn
“…but while we struggled in our leather wrapped cocoute …there was one military spec g-wagen that had run faultlessly. G-wagens aren’t about leather trim and surround sound. This, the professional, is a proper g-wagon!”

Umhumm... :tumbsup2: :wink:

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 28 Jan 2012, 16:03
frá Einsi
Það er gaman af þessu. Ég man einmitt þegar ég var ennþá í smábílaflokknum velti ég svona mikið fyrir mér. Setti miklu sterkari dempara í smábifreiðina en sleit þá bara festingarnar undan uppi á hálendinu.

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 29 Jan 2012, 13:55
frá Loki
Sprungnar vacumslöngur, brotnar varadekksfestingar og yfirhitaðir demparar!
Þetta eru hefðbundnar bilanir á malbiksbílum sem ekið er á þvottabrettum.

Drekkhlaðnar toppgrindur og harðpumpuð lágprófíldekk eru uppskrift af þessum vandræðum. Eini raunverulegi munurinn á 463 og 461 sem þarna voru, fólst í formúlunni "Minni Gjörð, -Meira Gúmí".

G á lágprófílsdekkjum er álíka gáfulegt fyrirbrigði og SLK á mudder.

Þessir 463 hefðu þurft sæmilega stór dekk, lægri loftþrýsting og jafnvel að draga e-h af draslinu á kerrum. Drekkhlaðin toppgrind er ok til að skjögta heim úr BYKO tvisvar á ári, -en ekki til ferðalaga.
Þarna voru viðvaningar á ferð.

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 29 Jan 2012, 22:01
frá msditlevsen
Sammála Loki,

Er bara nokkur ánægð með að vera á W461!

Martin

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 30 Jan 2012, 13:55
frá Einsi
Ég hef náttlega aldrei átt 461 en minn litli sæti 463 dugði svo sem ágætlega þó maður væri með 300 lítra af olíu plús mat og farangur að böðlast á þessu í snjó og ís. En ég var náttlega búinn að setja í hann Toyotufjöðrun að aftan sem hafði mikið að segja um betri aksturseiginleika. Eina sem fór alltaf í taugarnar á mér var að hjólalegurnar þoldu illa 38 tommu dekkin.

Re: G-class kynningaferð í óbyggðum Ástralíu

Innsent: 30 Jan 2012, 14:38
frá Loki
msditlevsen skrifaði:Sammála Loki,
Er bara nokkur ánægð með að vera á W461!Martin
Ég held það skipti ekki máli hvort þetta er 460, 461, 463, Súkka, Toyota eða Patrol.
Mestu skiptir að vera á stórum, mjúkum dekkjum sem koma í veg fyrir þennan víbring og óþarfa fjöðrun sem yfirhitar dempara, veldur heilaskemmdum á ökumanni og eyðileggur, hurðir, vatnskassa og lagnir.....
Í þessu tilviki var aðal munurinn á 461 bílnum að hann var á 16" felgum og mun veigameiri dekkjum.

Alloft sér maður myndir af breyttum erl. jeppum þar sem búið er að setja dempara með sérstöku utanáliggjandi forðabúri sem eykur mjög kæligetu demparans og kemur í veg fyrir ofhitun. Það er ekki eingöngu vegna lágs lofthita sem þetta er ekki mikið notaður búnaður hér.
Aðal atriðið er að flestir sem aka mikið og hratt á vondum vegum, gera það á mjúkum stórum dekkum sem gera þennan búnað óþarfan og gera það meira að segja að verkum að annars ófjaðrandi hluti bílsins er orðin að hluta til fjaðrandi.