Síða 2 af 2

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 25 Jan 2012, 20:12
frá E-cdi
frábært. G-class er einn flottasti jeppi sem ég hef augum litið.. og eins og M.B segir. tilhvers að breyta fullkomnun sem virkar 8) lengi lifi Glander

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 25 Jan 2012, 20:25
frá BaraBenz
Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem þeir hafa hætt við að hætta G framleiðslu.

Ef ég man rétt átti að hætta framleiðslunni 2006 eða 2007. Árið áður en þeir ætluðu að hætta hafði hann fengið verðlaun sem besti jeppinn í Evrópu að mig minnir.

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 25 Jan 2012, 22:31
frá gmg
BaraBenz skrifaði:Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem þeir hafa hætt við að hætta G framleiðslu.

Ef ég man rétt átti að hætta framleiðslunni 2006 eða 2007. Árið áður en þeir ætluðu að hætta hafði hann fengið verðlaun sem besti jeppinn í Evrópu að mig minnir.
Já þeir ætluðu að hætta með hann og láta GL-Class taka við, en viðskiftavinir um allan heim mótmæltu og þá var ákveðið að halda áfram !

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 25 Jan 2012, 23:44
frá Benni
G-class fær (nánast) reglulega viðurkenningu sem besti jeppinn í Evrópu.
Það hefur enginn komið enn sem toppar G :!: :tumbsup2:

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 26 Jan 2012, 11:40
frá Thrullerinn
Ef það væri framleiddur beinskiptur hrár gelandewagen þá myndi ég frekar kaupa hann.
Allt þetta rafmagn er óþarfi en vitaskuld þægilegt.

Verst er að ég þarf að öllum líkindum að selja hann í vor, vorum að stækka við okkur húsnæði. Á eftir að taka endanlega ákvörðun um þetta.

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 26 Jan 2012, 12:21
frá sveinn
Ég hef einmitt oft vel því fyrir mér afhveru þeir framleiða ekki svona millitary útgáfu af gamla W460, hráa með engu rafmagnsveseni; handvirkar glussalæsingar/rúðuupphalara, ekkert ABS, lágmarks óþarfa skynjarabull, góða tölvulausa díselrellu, beinskiptingu o.s.frv.. Alveg viss um að það sé markaður fyrir þetta. Bara svona "Basic off-road vehicle" án þess að vera trukkur eins og Unimog :tumbsup2: :wink:

Re: G-class verður áfram í framleiðslu skc. Car & Driver

Innsent: 26 Jan 2012, 16:59
frá BaraBenz
sveinn skrifaði:Ég hef einmitt oft vel því fyrir mér afhveru þeir framleiða ekki svona millitary útgáfu af gamla W460, hráa með engu rafmagnsveseni; handvirkar glussalæsingar/rúðuupphalara, ekkert ABS, lágmarks óþarfa skynjarabull, góða tölvulausa díselrellu, beinskiptingu o.s.frv.. Alveg viss um að það sé markaður fyrir þetta. Bara svona "Basic off-road vehicle" án þess að vera trukkur eins og Unimog :tumbsup2: :wink:
Er það ekki gert? Hvað með herútgáfuna, samanber þennan hér 2003 módel. Og ég sá slatta af þeim nýjum í Sloveníu 2007.

http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/showD ... abNumber=2

eða þennan hér.

http://suchen.mobile.de/fahrzeuge/showD ... abNumber=1

Þeir eru bara anskotann ekkert ódýrari

E.S. Reyndar með CDI vél.