Síða 1 af 1

Tímamæling díselvéla

Innsent: 09 Jún 2011, 13:24
frá Atli Þór Gunnarsson
Komiði sælir.


Leynist eithver hérna inni sem getur aðstoðað mig við að mæla hvort vélin mín er rétt á tíma?

Kv
Atli

Re: Tímamæling díselvéla

Innsent: 09 Jún 2011, 16:04
frá Gustavsson
Ég er nýlega búinn að tíma inn vélina hjá mér en hún er ekki komin í gang svo ég get ekki sagt þér hvort ég hafi gert það rétt :shock:
Tímamerkið á sveifarásnum er nokkuð augljóst sem og tímamerkið á knastás sem er skarð milli rétt aftan við tannhjólið og á að flútta við annað samsvarandi litlu aftar. Það tók mig hinsvegar smá tíma að finna tímamerkið á olíuverkinu en það er falið undir tappa sem er utaná verkinu. Tekur tappann af með 17 mm. lykli og þá blasir það við. Mig minnir að olíuverkið sé 20° á eftir toppstöðu. Ég allavega fór eftir leiðbeiningum í Haynes viðgerðabók fyrir w124 og það var gefinn upp sami tími fyrir allar gerðir díselvéla í þeim bílum.

Gangi þér vel
Arnþór