Síða 1 af 1
Biluð driflæsing
Innsent: 13 Maí 2010, 17:26
frá Eyjólfur
Jæja...
Nú er ég búinn að hamast í fína skrjóðnum í einhverja mánuði ásamt öldruðum föður mínum og við erum búnir að skipta um og/eða gera við allan andskotann af drasli. Loksins setti ég dekkin undir og fór í prufutúr en komst fljótlega að því að hann er fastur í læsingunni að framan. Ég kippti dælunni af til að athuga hvort hún væri vandamálið en hún er í fína lagi. Slífin inni í hásingunni rennur liðlega til en hann vill samt ekki sleppa úr læsingu. Grunar að eitthvað sé brotið en það virðist ekki vera hægt að komast að neinu nema að rífa allt í sundur.
Áður en ég ræðst með vélsög, sleggju og bensínbrúsa á kvikindið fyrir að láta svona eins og asni langar að spyrja hvort aðrir hafi lent í viðlíka veseni, hvort eitthvað sé til ráða og hvort það sé nóg að taka öxulinn úr bílstjóramegin til að komast að þessu? Þrautalendingin er að rífa báða öxlana og allt innvolsið úr en mig langar óskaplega til að sleppa við það. Góð ráð væru vel þegin.
Eyjólfur Sigurjónsson
Re: Biluð driflæsing
Innsent: 14 Maí 2010, 00:03
frá Mercedes-Benz
Eyjólfur skrifaði:Jæja...

Þetta er nú yfirleitt bilað þannig að þetta fer ekki eða tollir ekki á.... Er þetta í G Benz ?
Re: Biluð driflæsing
Innsent: 14 Maí 2010, 09:11
frá Eyjólfur
Þetta er nánar tiltekið stuttur '82 300 GD. Þarf að spaðrífa hásinguna alveg til að komast að læsingunni?
Eyjólfur
Re: Biluð driflæsing
Innsent: 09 Jún 2010, 16:17
frá Daggi
Er með akkurat öfugt vandamál læsingarnar fara ekki á held að þéttingarnar í dælunum séu farnar fær maður þetta einhverstaðar ?
Re: Biluð driflæsing
Innsent: 09 Jún 2010, 17:51
frá Gunnar Örn
Eyjólfur skrifaði:Jæja...
Nú er ég búinn að hamast í fína skrjóðnum í einhverja mánuði ásamt öldruðum föður mínum og við erum búnir að skipta um og/eða gera við allan andskotann af drasli. Loksins setti ég dekkin undir og fór í prufutúr en komst fljótlega að því að hann er fastur í læsingunni að framan. Ég kippti dælunni af til að athuga hvort hún væri vandamálið en hún er í fína lagi. Slífin inni í hásingunni rennur liðlega til en hann vill samt ekki sleppa úr læsingu. Grunar að eitthvað sé brotið en það virðist ekki vera hægt að komast að neinu nema að rífa allt í sundur.
Áður en ég ræðst með vélsög, sleggju og bensínbrúsa á kvikindið fyrir að láta svona eins og asni langar að spyrja hvort aðrir hafi lent í viðlíka veseni, hvort eitthvað sé til ráða og hvort það sé nóg að taka öxulinn úr bílstjóramegin til að komast að þessu? Þrautalendingin er að rífa báða öxlana og allt innvolsið úr en mig langar óskaplega til að sleppa við það. Góð ráð væru vel þegin.
Eyjólfur Sigurjónsson
Þegar þú ert búin að taka læsingartjakkin af, er þá sleðinn inní hásinguni laus?
Ef svo er þá ættiru að geta rent læsinguni af. Prófaðu að hafa bílinn á lofti að framan og tjakkinn úr og renna slaðanum til og frá, ef bíllinn er enþá í læsinguni sama hvort sleðinn er til hægri eða vinstri, þá ertu í vondum málum.
Allt í sundur.
Ég veðja þó að að tjakkurinn sé bilaður, 90% af bilunum í þessum búnaði er tjakkurinn.
Re: Biluð driflæsing
Innsent: 21 Jún 2010, 14:57
frá Eyjólfur
Málið er afleitt. Það fyrsta sem ég gerði var að rífa tjakkinn af og renna sleðanum til og frá með skrúfjárni. Ekkert gerðist. Sleðinn er laus og liðugur en læsingin virðist vera föst. Neyðist líklega til að taka öxulinn úr til að komast að því hvað hefur gerst. Ojbara.
Eyjólfur