Síða 1 af 1
Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 27 Okt 2009, 00:08
frá hr.annar
vildi bara benda mönnum á þetta þarsem ég er orðinn lödu eigandi
http://www.youtube.com/watch?v=dnLob1yC ... re=related" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 27 Okt 2009, 00:15
frá Einsi
Það er svo greinilegt hvaða bíll er bestur! Annars átti ég einhvern tíma svona Lödu á 32" dekkjum - fór allt og rúmlega það, bilaði aldrei og var almennt með traustari bílum og var þó orðin 14 ára gömul þegar ég seldi hana.
Re: Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 27 Okt 2009, 18:35
frá ARG22
Ladan hefur sína kosti en jafnframt sína galla

en ef ég man rétt þá er hún að vikta nærri helmingi minna en svona G jeppi
Re: Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 27 Okt 2009, 20:52
frá Einsi
Neinei Ladan var algerlega gallalaus, - hinn fullkomni bíll!
Og jú hún var létt - ég man að hún flaut ótrúlega vel á snjó á 32 tommum og frekar breiðum felgum. Verst hvað hún var ótrúlega kraftlaus. Ég ætlaði alltaf að setja tveggja lítra Fiat vél - sem var sama vél og í Lödunni, bara öðru vísi boruð en kom því aldrei í verk. Kostirnir við Löduna voru til dæmis sá að ég týndi fljótlega lyklunum af hurðunum svo að ég læsti henni aldrei. Það var oft farið inn í hana en aldrei neinu stolið, enda engu að stela.
Re: Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 28 Okt 2009, 15:43
frá SE
Einsi skrifaði:Neinei Ladan var algerlega gallalaus, - hinn fullkomni bíll!
Og jú hún var létt - ég man að hún flaut ótrúlega vel á snjó á 32 tommum og frekar breiðum felgum. Verst hvað hún var ótrúlega kraftlaus. Ég ætlaði alltaf að setja tveggja lítra Fiat vél - sem var sama vél og í Lödunni, bara öðru vísi boruð en kom því aldrei í verk. Kostirnir við Löduna voru til dæmis sá að ég týndi fljótlega lyklunum af hurðunum svo að ég læsti henni aldrei. Það var oft farið inn í hana en aldrei neinu stolið, enda engu að stela.
að týna lyklum að Lödu var nú ekki mikið vandamál ef Ladan var komin til ára sinna, fékkst bara lánaða lykla að annarri gamalli Lödu.....
en Lada Sport var alveg ótrúlega seigur jeppi, komst mikið í snjó
Re: Lada Niva vs. Mercedes Benz G
Innsent: 30 Okt 2009, 11:46
frá hr.annar
Lada Niva built for siberia not suburbia
SUV = sibirian utility vehicle