Síða 1 af 1
Korando vél í G-class
Innsent: 27 Ágú 2009, 22:51
frá Villi
Ætli einhver hafi sett 2.9 l, 5 cyl diesel vélina (man ekki tegund vélar) sem er í Korando í 460 bíl ? Og viti hvað ber að varast ?
Einnig er spurning hvort fram drifskaftið snúist ekki öfugt í 460, þannig að kassi/millikassi úr Korando væri tapað mál.
Re: Korando vél í G-class
Innsent: 28 Ágú 2009, 15:55
frá Mercedes-Benz
Villi skrifaði:Ætli einhver hafi sett 2.9 l, 5 cyl diesel vélina (man ekki tegund vélar) sem er í Korando í 460 bíl ? Og viti hvað ber að varast ?
Einnig er spurning hvort fram drifskaftið snúist ekki öfugt í 460, þannig að kassi/millikassi úr Korando væri tapað mál.
Erum að setja svona vél úr Musso í G bíl....
Re: Korando vél í G-class
Innsent: 30 Ágú 2009, 09:07
frá BaraBenz
2.9 l, 5 cyl diesel vélina (man ekki tegund vélar
Er ekki flest allir dísel Musso og Korando Mercedes Benz Powered?
Re: Korando vél í G-class
Innsent: 30 Ágú 2009, 23:50
frá Villi
Ætli vélin í Korando sé ekki 662, og skiftingin sem ég er með 711.
Spurning hvort þetta passar saman, þ.e. vél úr 1998 og skifting úr 1985, einnig hvort sjálfskiftingin þoli 40 hestöfl í viðbót. Annars gæti skifting úr Musso verið lausnin, hún mun amk þola sína eigin vél.
Mun reyna að fá að fylgjast með Rúnari varðandi vélarskiftin.