Síða 1 af 6
Breyttir G
Innsent: 07 Maí 2009, 07:10
frá Björgvin B
bul
Re: Breyttir G
Innsent: 07 Maí 2009, 08:33
frá JónasH
Re: Breyttir G
Innsent: 07 Maí 2009, 08:35
frá JónasH
Re: Breyttir G
Innsent: 07 Maí 2009, 08:35
frá sveinn
hann Einar hérna á spjallinu breytti Gelander fyrir 38" hér fyrir stuttu:
[img]
http://i38.tinypic.com/2l92p2t.jpg[/img]
Og svo er hann Jónas líka að breyta einum fyrir 38"
http://k43.pbase.com/o6/29/277029/1/110 ... _66811.JPG
(það er svo erfitt að birta myndir beint frá honum, að maður verður að hafa þetta sem link

)
Svo eru þessir líka:
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl17.jpg[/img]
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl22.jpg[/img]
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl23.jpg[/img]
Re: Breyttir G
Innsent: 07 Maí 2009, 09:23
frá Björgvin B
[img]
http://fornbilar.stjarna.is/img/g/gl23.jpg[/img][/quote]
Ég hef séð þennan jeppa í nálægð, glæsilegt eintak og duglegur á fjöllum, hvað kemur í veg fyrir 44 breytingu á svona bíl, er hægt að fá skriðgír í þessa bíla, hvaða gír er það og hvað hlutföll eru í þeim gír ?
Re: Breyttir G
Innsent: 08 Maí 2009, 15:31
frá Björgvin B
Sælir
í Patrol eins og ég á 94 módel þá smíða ljóntaðir jeppasmiðja skriðgír í þannig bíl og þá er hægt að velja um hlutföll, svona aukamillikassi kostar um 200 þúsund og er þá með 1/2 hlutfall sem dugar í flestum tilfellum mjög vel, en síðan er hægt að fá lægri hlutföll til dæmis 2,86:1 og 3,74:1 og kosta þau 169,000- íkomin. Verðið á ísetningu á svona gír er æði breytilegt en töluverð vinna liggur að baki svona verki, breyta þarf handbremsu, breyta grind, stytta og lengja drifsköft og fl.
Svona skriðgír breytir drifgetu jeppans töluvert enda komið annað lægra drif nefnilega helmingi lægra.
Þekkja menn hvort Mercedes býður upp á svona skriðgír og hafa G jeppa eigendur sett þetta í sína bíla.
Re: Breyttir G
Innsent: 08 Maí 2009, 16:04
frá Loki
Það er ekki hlaupið að því að smíða hefðbundinn skriðgír í G Benz.
G er með sjálfstæðan millikassa og afturendinn á gírkassanum er af sömu gerð og í afturdrifsbílum. Til þess að útfæra milligír á sama hátt og gert er í Patrol þyrfti því að skipta um bæði gírkassa og millikassa.
Ef þetta er 460 þá þyrfti einnig að skipta um framhásingu þar sem 460 millikassinn snýr framskaftinu í öfuga átt við það sem almennt tíðkast.
Þessu til viðbótar þá er grindarbiti á milli gírkassa og millikassa á 460/463 sem þyrfti að færa eða endursmíða.
Ein leið er að nota skiptingu og lágadrifsköggul úr Musso, með stuttu drifskafti aftur úr lágadrifskögglinum og inn á G millikassann. Líklega þyrfti að færa millikassann aftur og slást við e-h grindarbita. Í raun er einfaldara að fá sér aðra gerð af jeppa fyrir þessi not.
Þessu til viðbótar er lágadrifið í G lítið niðurgírað.
Þetta fyrirkomulag með sjálfstæðan millikassa er notað í vörubílum, Suzuki fox og jimny og GAS 69.
Þetta hentar vel í stutta bíla en í G bílnum þá er þetta einfaldlega "cheap trick" til að hægt sé að notast við hvaða vél og skipingu sem vera skal, án þess að framleiða sérstök gírkasshús eða slást við misjafna stöðu millikassa og lengd drifskafta.
-Hentar vel í bíl sem framleiddur hefuð verið 4, 5, 6, 8 og 12 cyl með vélarafl 72 - 710 hestöfl.......
Re: Breyttir G
Innsent: 08 Maí 2009, 19:22
frá Gunnar Örn
Loki skrifaði:Það er ekki hlaupið að því að smíða hefðbundinn skriðgír í G Benz.

Ég er ekki sammála þessu.
Ljónstaðabræður segjast geta smíðað allt og ég trúi því að það sé lítið mál að snikka í þetta auka-millikassa ef menn vilja.
í G-wagon með 4-5- og 6 Cylendra vél og beinskiptingu er 51-64 cm langt skaft frá gírkassa og að millikassa.
Má ekki bara setja auka-niðurgírun þar á milli?
Re: Breyttir G
Innsent: 08 Maí 2009, 20:55
frá Loki
Gunnar Örn skrifaði:Loki skrifaði:Það er ekki hlaupið að því að smíða hefðbundinn skriðgír í G Benz.

Ég benti á einfaldasta möguleikann sem er að nota Musso skiptingu með lágadrifsköggli og drifskaft þar aftaná. Eldri gerðir Musso sjálfskiptinga eru frá Benz og með fjórðagírinn beint í gegn og henta betur en yngri skiptingar sem eru með yfirgír.
Auðvitað er allt hægt en milligír á milli G skiptingar og G millikassa verður aldrei með sama hætti og þegar smíðað er í sambyggða drifrás eins og er í næstum öllum öðrum jeppum. Þetta verður verulega dýrara en rútínusmíði í Patrol.
Á mínum beinskipta 5 cyl bíl er millidrifskaftið 28 cm. Ekki mikið pláss þar. Veit að Musso skiptingar eru verulega styttri.
Það voru e-h Súkkur í umferð með tvo gírkassa en það hefur í för með sér mikil átök á aftari kassann þegar sá fremri er í lágum gír.
Aðal gallinn við þessa sjálfstæðu millikassa er aukin hætta á víbring, Ein sjálfstæð eining til viðbótar ásamt stuttum drifsköftum er vandmeðfarin samsuða.
Einar Þór er á 460 með 6,17 drifum og fyrsti gír er einnig 6,17. Heildarniðurgírun er 80 föld. Þessu er hægt að ná með hefðbundnum íhlutum og án kostnaðarsamrar sérsmíði.
Re: Breyttir G
Innsent: 08 Maí 2009, 22:10
frá msditlevsen
Ég held að ef ég vilja gera eithvað i soleðis, vilja ég freka fá mer glussa drif etthvað stað i mitli i staðan fyrir að blanda Musso ogedið ind i þessa.