Síða 3 af 4

Innsent: 12 Jan 2009, 10:49
frá sveinn
Burri skrifaði:hvað með slokkvibílabreitingafyirtækið á Ólafsfyrði /Sigurjón Magnússon/

? getur þetta verið breitingar frá þeim ?
Já, auðvitað það getur náttúrulega alveg eins verið einhver hér á landi sem hefur breytt þessum bílum. Hugsaði ekki út í það ;)

Innsent: 12 Jan 2009, 21:00
frá eyjok
hvað með slokkvibílabreitingafyirtækið á Ólafsfyrði /Sigurjón Magnússon/

? getur þetta verið breitingar frá þeim ?
Það getur ekki verið.
Slökkvi og sjúkrabílabreytingar eru frekar nýjar af nálinni þar.
En ég get komist að þessu frekar auðveldlega hver breytti bílunum.

Innsent: 18 Jan 2009, 15:26
frá eyjok
Jæja ég fékk pistil frá vinnufélaga,en hann vann á þessum bíl hjá SA.

Það var gert úti í Þýskaland þegar hann var gerður sjúkrabíl,,, það komu 3 svona bílar til landsins 1. var á Seyðisfirði, hann var seldur og breytt í verfærabíl hjá verktaka 2. Var á Eskifirði og er þar enn en núna sem líkkistubíll mjög flottur og 3 var á Akureyri. Þetta var skemtilegur bíll að mörguleiti,, mjög mjúkur og fór vel með sjúklinga,, en hrikalega þröngt sjúkrarími,, kraftmikill,,, en eyddi alveg hrikaleg,, hann var læstur bæði að framan og aftan og mjög öflugur í ófærð,,, en það var einn stór galli við hann,, hann var svo léttur að framan að í hálku var hann stór varasamur,,,,, svo lá hann alltaf á vinstri hliðinni þeim megin sem bílstjórinn sat og sjúklingurinn lá ég held að það hafi verið 3-4 skipt um gorma þeim meginn....

Þar hafið þið það.

Innsent: 18 Jan 2009, 15:49
frá Gunnar Örn
Gunnar Örn skrifaði:Þessi á efri myndini er 240GD Dísel.
Með þessu á ég við Græna bílinn á efri myndini, þar að segja þennan samsetta, sem er á númerinu N 97.
Um þennan græna sundurtætta veit ég engin deili á.

Þessi langi hvíti og blái er hinns vegar 280 GE held ég .

Innsent: 19 Jan 2009, 14:57
frá sveinn
Gunnar Örn skrifaði:
Gunnar Örn skrifaði:Þessi á efri myndini er 240GD Dísel.
Með þessu á ég við Græna bílinn á efri myndini, þar að segja þennan samsetta, sem er á númerinu N 97.
Um þennan græna sundurtætta veit ég engin deili á.

Þessi langi hvíti og blái er hinns vegar 280 GE held ég .
Ok, þú átt semsagt við þennan, er það ekki?
[img]http://safnid.siminn.is/safnid/webui/_x ... t_SDsnByNE[/img]
...þetta er semsagt nýr bíll í 460 safnið :wink:

Innsent: 19 Jan 2009, 15:03
frá sveinn
clover skrifaði:Á sjálfur svona bíl 5cyl disel m/stt turbo og millikæli, frábær ferðabíll ekki húsbíll, smellir upp svefnaðstöðu á 5 mín 140x200 en samt er pláss til umsvifa fyrir framan.
Þessi bíll er fyrrum sjúkrabíll á Seyðisfirði, en er nú í Neskaupstað og nafnið á honum er LJÓTUR.
Gunnar Örn skrifaði:Þessi langi hvíti og blái er hinns vegar 280 GE held ég .
Þú meinar, er það ekki, að hann hafi upphaflega verið 280GE?

Samkvæmt "Clover" er greinilega búið að setja í hann 5cyl 300 díesel núna?

En er hann semsagt framleiddur sem 280GE?

Innsent: 25 Jan 2009, 14:09
frá clover
Upplýsingar um N 97 Grænabenzann og S 360 Bláabenzan hann Ljót.

Græni bensinn N 97 er 240GD með 617 mótor án túrbínu og víst er hann latur, en hann er einnig með upphaflegu drifhlutföllin úr 240GD en fimmgíra kassa með yfirgír og orginal dryflæsingar.
Heldur varð hann nú sprækari á fjallinu þe. yfir Oddskarð þegar skipt var úr 4sylendravélinni yfir í fimm. Í fyrstu var ég með hann á orginal dekkjunum , en fór síða á 32“ svo 33“ síðan 35“ en núna er hann á 33“ en bestur þótti mér hann á 35“ hann er bara hækkaður með millileggi undir gorma. svo er slípað hér og þar svo dekkinn séu frí.

Saga þessa bíls er sú að ég fór til Þýskalands við annan mann sem var að skoða- og kaupa bíla og tæki, ég til að fá mér Audi Quattro.

Svo prufaði ég þennan „Trukk“ og steinlá þarna var „Qattro“ kominn og hefur ekki frá mér farið utan þess að vinur minn frá Bretlandi kom upp til Íslands í sumarfrí með fjölskylduna og ég fór með bensan suður ásamt fjörgömlum tjaldvagni Combicamp sem opnast atur. Og fékk hann leyfi til að aka þangað með tjaldvagninn er bensinn kæmist. Þótti honum þetta nokkuð merkilegt og hóf ferð sína í Hafnarfirði mínum gamla heimabæ og endaði hana svo aftur þar eftir marga króka og likkjur á leið sinni um landið. ( Ég fékk síðan að heyra það frá nokkrum af mínum kunningjum að ég væri svo merkilegur með mig að ég heilsaði ekki þegar við mættumst á förnum vegi, þe. þeir mættu N 97 en ekki mér).

Flutti síðan „Trukkinn“ inn í sept. 1986.

Í sumar ætla ég að hengja lítið upphækað Pólskt hjólhýsi aftan í hann og rölta á fjöll, fynnst sá blái S 360 vera helst til þröngur nú orðið líklega helst fyrir það að hundurinn Gríma bættist í hópinn og er hún ekki af minstugerð er af tegundinni Briard og er frönsk að uppruna. (Þar sveik ég lit var áður með Schafer í 24 ár).
Þannig að nú er ég að velta fyrir mér framtíð þess bláa.

Blái bensinn kemur á götuna um áramót 86/87. S 390 er orginal 300GD 5cyl 617 motor beinskiptur með 4gíra kassa og driflæsingum, þrjár miðstöðvar eru í bílnum og ein lofttúða sem virkar bæði sem inn- og útblástur tveggja hraða og hægt að loka henni alveg svo er mjög góð lýsing í honum. Hann þótti latur á Fjarðarheiðinni þannig að það var sett í hann SST túrbina og millikælir og lagaðist hann snökktum við það (er mikið brattari á Oddskarðinu en sá gamli þótt hann sé mun þyngri)

Sá blái var notaður af vélsmiðjunni Stál sem verkfæra- og mannskapsbíll eftir veru sína sem sjúkrabíll á Seyðisfirði. Svo eignaðis Hafþór Eyde bílinn í nokkurn tíma og síðan ég. Við höfum notað hann til fjallaferða í nokkur ár frábær ferðabíll og erum við þá með hann þriggja manna þe. eitt sæti afturí annars er hann fimm manna. Mjög fljótlegt að setja upp svefnaðstöðu 140x200, og er þó pláss til að athafna sig í bílnum.

Svarti bensinn á Eskifirði er 280GE og er sjálfskiptur með sömu yfirbyggingu og hinir bílarnir. Er stór glæsilegur í því hlutverki sem hann er í dag (ekki ljótur þótt langur sé). Skal reyna að ná mynd af honum við tækifæri.

Held að það sé byggt yfir þá alla á sama stað í Bonn í Þýskalandi.

http://cid-66b275053fde2041.skydrive.li" onclick="window.open(this.href);return false; ... erki-1.jpg

Sendi myndir inn á þráðinn þegar mér hefur tekist að vísa til þeirra eithvað kunnáttu bras eða réttarsagt vankunnáttu.

Nú er sá blái seldur, er nú veiðibíll hjá 6 veiðifélögum á Egilsstöðum


---------------------------------
Þórarinn Smári

Mercedes Benz (w 460) 240 GD
Mercedes Benz ML 270 CDI

Innsent: 25 Jan 2009, 15:35
frá sveinn
Takk fyrir þennan pistil Þórarinn! :) ...alltaf gaman að heyra svona sögur.

Sendu mér myndir á sv1@vks.is og ég skal koma þeim hér inn (þú ert að vísa á myndir á netinu sem eru á lokuðu svæði).

Innsent: 26 Jan 2009, 15:02
frá ivar
það stendur svona grænn 33-35" breyttur 2dyra G bíll hérna í kópavogi, sé hann útum gluggan

Innsent: 26 Jan 2009, 15:09
frá Benni
ivar skrifaði:það stendur svona grænn 33-35" breyttur 2dyra G bíll hérna í kópavogi, sé hann útum gluggan
:photo: og senda oss :wink: