Bragi1 skrifaði:Já nákvæmlega það sem ég var að pæla. Þetta kemur stundum og stundum ekki. Sérstaklega þegar ég slæ af. Þetta er pínulítið eins og vælið í miðstöðinni, kemur og fer. Annars er bremsurnar-alveg-að-klárast ljósið farið að loga. Gæti kannski tengst því?
Fyrst er að ganga úr skugga um að fyrst þú varst að skipata um dekk hvort þú hafir örugglega notað rétta lengd af boltum. Það hljóð getur komið og farið ef að boltarnir eru að narta í gormana því að það gæti komið og farið eftir því hvernig bíllinn hallar eða hvort hann er í beygju eða ekki.
Hitt er svo annað mál að ef að bremsuklossar eru að verða búnir getur verið að koma eitthvað leiðinda hljóð úr því líka, en það er eitthvernvegin samt ekki miðað við þína lýsingu hljóðinu.
Ef þú ert hérna á höfuðborgarsvæðinu að þá get ég hugsanlega kíkt á þetta hjá þér og hlustað á þessi hljóð fyrir þig til að segja mitt álit.