Síða 1 af 2
Re: að skipta um vél
Innsent: 04 Sep 2003, 17:34
frá Ztebbsterinn
EinarSig skrifaði:ég er nú bara að pæla en ef svo færi að maður finndi 2.3 L 16V vél úr 190e... er mikið vesen að skipta um ? ég er ekki með á hreinu hvort 2.3 lítra sé sex strokka vél.... veit einhver ? þó svo að hún væri 6 strokka þarf þá að mixa e-ð ?
ef 4 strokka er þetta þá ekki nokkuð einfalt ?
p.s ég veit ekkert um vélar og stuff .... en er alltaf að bæta í þekkinguna með heimskulegum spurningum
Sæll.. ef þú setur 2,3 fjölventla(sem er 4-strokka, en til gamans má geta þá er hún líka til 6 sílendra í t.d.´75 módelinu ), þarftu að skipta um megnið af lúmminu (rafkerfinu)... það er vinna
Innsent: 04 Sep 2003, 18:08
frá Mercedes-Benz
Ég myndi ekki leggja í að skipta um vél í Benz þannig að það sé verið að setja öðruvísi vél en var í honum í upphafi. Það er svo ótrúlega margt sem er öðruvísí í bílnum ekki bara vélin. Það getur meira að segja farið út í það að það þurfi að skipta um hluta af fjöðrunarkerfi, sjálfskiptingu eða gírkassa, drif og drifskaft, bremsudiska og dælur, spirnur og stífur og ýmislegt sem maður almennt tengir alls ekki við það að skipta um vél í bíl. Eina leiðin til að vera öruggur um að þetta sé gert þannig að af því verði einhver sómi er að kaupa t.d. tjónabíl og rífa hann jafnóðum í verkið til þess að geta örugglega sótt sér allt í þann bíl sem er öðruvísi milli týpanna tveggja. Annað væri óðs manns æði að mínu mati því ég er búinn að reyna þetta nokkru sinnum með frekar döprum árangri.
Að endingu vil ég benda á að 16 ventla vél getur aldrei verið með sex strokkum. Það myndi þýða 2,67 ventlar á hvern stokk og allir ættu nú að geta séð að þeir þurfa ýmista að vera 2, 3, eða 4 á hverjum stokk. Sex stokka vél er því alltaf 12, 18 eða 24 ventla og fjögurra stokka vélar 8, 12 eða 16 ventla.
Innsent: 04 Sep 2003, 20:24
frá Benzari
Það munar svo litlu í verði á þessum bílum þannig að, já það borgar sig ekki.
Innsent: 04 Sep 2003, 21:39
frá HHS
það er nú alveg hægt sko....veit að það er einn að setja eða búinn að setja vél úr 380 se í W123 coupe
Innsent: 04 Sep 2003, 23:13
frá Benzboy
HHS skrifaði:það er nú alveg hægt sko....veit að það er einn að setja eða búinn að setja vél úr 380 se í W123 coupe
Það er líka nánast allt hægt - bara spurning hversu mikil glóra er í því
Innsent: 05 Sep 2003, 23:34
frá sveinn
HHS skrifaði:það er nú alveg hægt sko....veit að það er einn að setja eða búinn að setja vél úr 380 se í W123 coupe
Er þessi bastarður hér á Íslandi? ....og hver er faðirinn?
Innsent: 06 Sep 2003, 00:13
frá HHS
já þetta mun vera á íslandi, sá sem á hann vinnur á hjá bílaverkstæðinu réttir bílar að mig minnir.
Innsent: 06 Sep 2003, 00:50
frá sveinn
HHS skrifaði:já þetta mun vera á íslandi, sá sem á hann vinnur á hjá bílaverkstæðinu réttir bílar að mig minnir.
Bíddu nú við. Réttir bílar. Eitthvað könnumst við nú við það Norðfjarðar verkstæði. STEFÁN! ...ertu með annað rassgat í smíðum hér eða er 3.8 komin í boruna á hinum? Afhverju keyptirðu ekki frekar ryðhauginn af Gretti og settir 6.9 í hann. Það hefði sko verið bastarður í lagi!