Síða 1 af 2
Re: Loftdæla
Innsent: 02 Sep 2003, 19:12
frá Ztebbsterinn
Silver Star skrifaði:Vonandi getur einhver hjálpað mig, vandamálið lýsir sig þannig að hvert
skipti ég opna bílinn þá heyrist voða hátt í loftdæluna sem er undir
aftursætið þetta er eins og hún sé að byggja upp þrýsting, þetta hefur
ekki gerst áður. Athugasemdir velkomnar.
Ekki er loftdæla í w123 sem stjórnar samlæsingunni, heldur stjórnast hún af vacumi (sogi), sem að vélin myndar þegar hún er í gangi. Þegar drepið er á honum er svokallaður vacum kútur (sog-kútur), staðsettur ofan á bensíntanknum (í zedan og cupe), sem að heldur uppi þrístingi (vacumi), og þegar þú læsir/aflæsir bílnum þá getur verið að eitthver af "dælunum" í hurðunum sé að draga falst loft, og þá gæti heirst eitthvað hljóð..
Innsent: 02 Sep 2003, 19:46
frá Mercedes-Benz
Hvernig bíll er þetta nákvæmleg og hvaðan er hljóðið nákvæmlega að koma. Er hljóðið frekar þegar bíllinn er í gangi eða þegar dautt er á honum. Kemur það bara ef hurðin er opin og er hljóðið inni í bílnum eða úti, hægra eða vinstra megin. Sumum Benz eigendum hefur brugðið illilega við að allt í einu heyrist hljóð undan bílnum sem er eins og í loftdælu þegar bíllinn er í gangi. Þetta hljóð kemur vegna þess að það slitnar eithvað í bensíndælunni sem er undir aftursætinu og hún byrjar þess vegna að verða hávær allt í einu. Ástæða þess að dælan fer svona er sú að það er of sjaldan skipt um síuna sem er við dæluna. Ég hef komist í það að sjá 230E bíl sem ekinn var rúm 200 þ.km. með orginal síunni frá því hann var nýr og að sjálfsögðu var dælan ónýt. Er mögulegt að hljóðið sé að koma innan við hægra afturhjól undi aftursætinu þegar bíllinn er í gangi?
Innsent: 03 Sep 2003, 13:57
frá sveinn
Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvað sé vandamálið útfrá lýsingunni, en líklega er sá hluti undirþrýstings-kerfisins (vacuum) sem er virkur þegar bíllinn er ólæstur að draga inn falskt loft. Ef þú ert með bílinn í gangi og soghljóð heyrist, sestu þá í bílstjórasætið og prófaðu að læsa lokaðari bílstjórahurðinni og athuga hvort soghljóðið hættir ekki. Ef hurðarnar læsast og hljóðið hættir, þá vitum við hvað er á ferðinni. Ef svo er, þá er hægt að útvega þér lýsingu á því hvernig auðveldast er að komast að því hvar lekinn er, en það er gert með því að kúpla út ákveðnum hluta af kerfinu í áföngum (ef það er þá ekki augljóst útfrá hljóðinu).
Í W123 bílnum er loftleiðsla sem liggur frá hægri afturhurðinni aftur í skottlokið sem er með T-stykki á miðri leið og úr því liggur önnur stutt leiðsla upp í bensínlokið. Mér finnst líklegt að þetta sé eins í W124 og að þessi leiðsla sé hreinlega dottin úr sambandi eða eitthvað miðað við lætin (frekar en það séu fóðringar í loftlokanum sjálfum sem eru farnar, sem reyndar er algengara). Kerfið er tvöfalt og eru læsingarleiðslurnar svartar, en aflæsingarleiðslurnar gular (að mig minnir, hmmmmm).
Innsent: 03 Sep 2003, 14:03
frá Ztebbsterinn
sveinn skrifaði:Það er svolítið erfitt að átta sig á því hvað sé vandamálið útfrá lýsingunni, en líklega er sá hluti undirþrýstings-kerfisins (vacuum) sem er virkur þegar bíllinn er ólæstur að draga inn falskt loft. Ef þú ert með bílinn í gangi og soghljóð heyrist, sestu þá í bílstjórasætið og prófaðu að læsa lokaðari bílstjórahurðinni og athuga hvort soghljóðið hættir ekki. Ef hurðarnar læsast og hljóðið hættir, þá vitum við hvað er á ferðinni. Ef svo er, þá er hægt að útvega þér lýsingu á því hvernig auðveldast er að komast að því hvar lekinn er, en það er gert með því að kúpla út ákveðnum hluta af kerfinu í áföngum (ef það er þá ekki augljóst útfrá hljóðinu).
Í W123 bílnum er loftleiðsla sem liggur frá hægri afturhurðinni aftur í skottlokið sem er með T-stykki á miðri leið og úr því liggur önnur stutt leiðsla upp í bensínlokið. Mér finnst líklegt að þetta sé eins í W124 og að þessi leiðsla sé hreinlega dottin úr sambandi eða eitthvað miðað við lætin (frekar en það séu fóðringar í loftlokanum sjálfum sem eru farnar, sem reyndar er algengara). Kerfið er tvöfalt og eru læsingarleiðslurnar svartar, en aflæsingarleiðslurnar gular (að mig minnir, hmmmmm).
Höfuðundirþrístingsleiðslan sem fer í bílstjórahurðina er gulur, læsingar leiðslan er gul með rauðri rönd, en opnunar leiðslan er gul með grænni rönd, eins og maður er á ljósum við mikklubraut
Innsent: 03 Sep 2003, 14:36
frá sveinn
Ztebbsterinn skrifaði:Höfuðundirþrístingsleiðslan sem fer í bílstjórahurðina er gulur, læsingar leiðslan er gul með rauðri rönd, en opnunar leiðslan er gul með grænni rönd, eins og maður er á ljósum við mikklubraut
Já, alveg rétt, það er örugglega sama litasamsetning í w123 og þú nefnir Stefán. Ég var sjálfsagt að rugla þessu við það sem er í w109 bílnum mínum (sem ég þurfti að tengja upp frá grunni á sínum tíma). Hann hefur svartar og gular leiðslur.
Annars þurfti ég að fara yfir læsingarkerfið á w123 bílnum mínum fyrir einhverjum árum og þá var það einmitt loftlokinn fyrir bensínlokið sem var bilaður (það síðasta sem ég prófaði, að sjálfsögðu). Það var hvimleiður smáleki í læsta hluta kerfisins sem gerði það að verkum að aðeins bílstjórahurðin aflæstist þegar bílinn var opnaður eftir að hann hafði staðið í einhverja klukkutíma. Ekkert augljóst soghljóð eins og hjá “Silver Star”.
Innsent: 03 Sep 2003, 16:01
frá sveinn
Silver Star skrifaði:allar hurðir opnuðust og skottið lika enn ekki bensín lokið, þetta hljóð
lýsir sig þannig eins og eitthvað er að byggja upp þrýsting.
Annars er einhver græja undir aftur sætið hægra meginn sem ég veit ekki
hvað er.
Undirþrýstingur (vacuumið) byggist upp á svipaðan máta og þrýstingur, þannig að þetta ætti að virka svipað og ryksuga sem færi rólega af stað. Ég skil samt ekki alveg hvernig þú fórst að læsa bílnum áður en allur undirþrýstingurinn hvarf út (ekki nema að þú hafir læst þig inni með bílinn í gangi, drepið síðan á honum og opnað). Ætli að loftlokinn fyrir bensínlokið standi eitthvað á sér í læsingu og leki þarmeð þegar skipt er yfir á aflæsingarhluta kerfisins?
Hættir hljóðið ef þú situr í framsætinu með bílinn í gangi og allar hurðir lokaðar, og læsir bílstjórahurðinni??????
Græjan undir aftursætinu er ráðgáta. Hér er kannski eitthvað allt annað vandamál á ferðinni. Rúnar?