Síða 1 af 1
Afturrúðu skipti
Innsent: 01 Sep 2003, 21:01
frá HHS
Er mikið mál að skipta um afturrúðu í svona 280 SE W126 benz? einhver prófað að skipta? eða ss, taka heila rúðu úr varahlutabíl og setja í annan bíl.
Re: Afturrúðu skipti
Innsent: 02 Sep 2003, 19:16
frá Ztebbsterinn
HHS skrifaði:Er mikið mál að skipta um afturrúðu í svona 280 SE W126 benz? einhver prófað að skipta? eða ss, taka heila rúðu úr varahlutabíl og setja í annan bíl.
Þetta er svosem ekkert stór mál, það þarf nú samt að rífa burtu klæðninguna allt um kring, svo er þetta í gúmmíkanti sem er bara flett yfir brún. En það þarf
ekki að taka crome listana af, það er bara til frekari vandræða
Innsent: 02 Sep 2003, 19:19
frá HHS
er þessum gúmmí kannti flett af innan frá s.s?
Innsent: 02 Sep 2003, 19:24
frá Ztebbsterinn
HHS skrifaði:er þessum gúmmí kannti flett af innan frá s.s?
yes...
Innsent: 02 Sep 2003, 19:25
frá HHS
ok takk,
Innsent: 02 Sep 2003, 19:27
frá Ztebbsterinn
HHS skrifaði:ok takk,
ekkert mál, eny time..
Innsent: 02 Sep 2003, 19:52
frá Mercedes-Benz
Það er best að verka kantinn rólega fram fyrir brúnina sem hann er dreginn inn fyrir með skrúfjárni. Það er erfitt að lýsa þessu og því skal ég taka mynd á eftir af því hvernið þetta er gert og setja hana inn á vefinn. Þegar rúðan er sett í aftur er hún dregin í gatið með snæri. Athugaðu að það má alls ekki reyna að taka krómlistan úr gúmmíinu áður en rúðan er tekin úr og að hann verður að vera í gúmmíkantinum þegar rúðan er dregin í aftur. það er ekki hægt að setja hann í eftir á.
Myndir af rúðu tekinni úr
Innsent: 02 Sep 2003, 20:58
frá Mercedes-Benz
Jæja hér koma myndirnar.
1. Skrúfjárn er sett uppað kantinum við miðju en nær boddy bílsins þó.
[img]
http://www.stjarna.is/images/Rúða%20úr%201.jpg[/img]
2. Skrúfjárninu er ýtt með varúð á kantinn til að ýta honum útfyrir brúnina. (Sjá hvernig hann er kominn útfyrir ofan við skrúfjárnið)
[img]
http://www.stjarna.is/images/Rúða%20úr%202.jpg[/img]
3. Srúfjárnið og kanturinn komið út fyrir boddýið. Skrúfjárnið er þá tekið til baka og sama endurtekið aftur og aftur þar til að þrjár hliðar hafa verið losaðar skref fyrir skref með þessum hætti. Þá er rúðan laus og óbrotin.
[img]
http://www.stjarna.is/images/Rúða%20úr%203.jpg[/img]
ATHUGIÐ: veljið frekar stórt skrúfjárn til að skemma síður gúmmíkantinn.
Innsent: 02 Sep 2003, 21:41
frá HHS
takk kærlega
Innsent: 03 Sep 2003, 11:58
frá Ztebbsterinn
HHS skrifaði:takk kærlega
hefði ekki getað líst þessu betur