Síða 1 af 1

Miðstöð

Innsent: 27 Feb 2006, 15:33
frá gulli
Ég er á C200 bíl árg 2001. Miðstöðin blæs ekki niður á fætur og ómögulegt að þurfa að vera í kuldaskóm þegar maður ekur um á Benz.
Þegar bíllinn er settur í gang heyrast smellir nokkrum sinnum þar sem lokan sem stýrir loftflæðinu stýrir því ýmist upp eða niður, en endar oftast þannig að enginn blástur kemur niður. Þegar stillt er á blástur niður lokast fyrir allar lofttúður.
Er ekki einhver fróður um hvað geti verið að og hvernig stýring sé á þessu spjaldi, er þetta mótor eða segullokar sem stjórna þessu.

Ég vil helst fara að komast úr kuldaskónum.

Kv. Gulli.

Innsent: 27 Feb 2006, 16:22
frá Björgvin
Leiðinlegt að hafa ekki heita fætur í BENZ 8)

Kveðja

Innsent: 29 Apr 2006, 22:01
frá Kjartanbj
vacum leki? þetta er svipað og er í mínum benz(190E) þá virkar miðstöðin ekkert nema blæs bara heitu og bara út um túðurnar að framan og svo er bara hægt að hafa kalt í miðjustokknum fæ engan hita annarstaðar né get ég kælt , mér er sagt að það sé vacum leki en ég hef ekki skoðað það, né veit hvar hann gæti verið

Innsent: 30 Apr 2006, 17:01
frá Kjartanbj
you have a vacuum leak

check the connection to the heat control valve (it is inbetween the two fire walls, on the ride side).
þetta var mér sagt á 190E forumi.. annars veit ég ekki :) svo eru helling af vacum slöngum þarna á bakvið miðstöðvar console'ið þannig hver veit