Síða 1 af 1
Bremsuklossar/diskar
Innsent: 19 Maí 2005, 21:05
frá Leikmaður
Sælir piltar
Það er komið kvöld og því ekki hægt að hringjast um og spyrja (enda nenni ég því ekki

)
En hvar er hagstæðustu kaupin í klossum og diskum undir W124?
Kv.
Jóhann Karl
Innsent: 19 Maí 2005, 22:11
frá Björgvin
Ég lét gera við í C bílnum samrofa í hurð og fékk uppgefið að hann kostaði 40 þús í Öskju(komst svo seinna af því að það var vegna vankunáttu starfsmannisins í varahlutaversluninni að hann gaf mér rangt verð) en fékk hann loks á 15700(með afslætti) í Ræsi! Þannig að ég verð að segja að Ræsir komu best útúr þessu máli fyrir mig eins og hingað til!
Kveðja
Innsent: 19 Maí 2005, 22:20
frá Mercedes-Benz
Ég hvet þig til að bera verðið í Öskju saman við önnur verð á öðrum passandi íhlutum fyrir bremsurnar í bílnum þínum og hafa í huga að þar ertu að fá orginal viðurkennda vöru þótt margt af því sem til sé á markaðinum sé ekki í öllum tilfellum slæm kaup.
Innsent: 19 Maí 2005, 23:06
frá Þröstur
Með þessa hluti versla ég aldrei við annan en Albert hjá AP varahlutum hann er uþb. 30% ódýrari en hinir.
Innsent: 20 Maí 2005, 12:40
frá Leikmaður
..hmmmm, spurning um að sannreyna þetta!
Þetta er þannig séð frekar einföld spurning, hvar er ódýrast fyrir mann að versla bremsuklossa og diska(ég veit að það eru til nokkrar tegundir) en bara spurning hvar maður fær ódýrasta og skásta
Er einhverjum sem leiðist í vinnunni og langar til að tékka á þessu, þ.e.a.s. þessir helstu staðir: Ræsir, Askja, AP, TB!
Bíllinn er 300E-24v
Innsent: 20 Maí 2005, 13:09
frá Mercedes-Benz
Verð hjá Öskju
Diskar framan: 4.585,- ókældir og 6.628,- kældir
Klossar framan: 6.877,-
Diskar aftan: 4.329,-
Klossar aftan: 3.640,-
