gwagon skrifaði:Hefur einhver skipt um upphengju?
Er þetta mikið mál?
Er fóðringin pressuð í?
Þarf sér verkfæri til að gera þetta?
Ég hef nú ekki gert þetta en er líkleg þinn þjáningarbróðir í þessu því að ég þarf að gera það í öðrum 123 bílnum mínum. Þetta er víst lítið mál maður á bara að losa boltan úr og berja fóðringarnar úr og síðan eru hinar bara reknar í rörið sem er soðið þarna í boddýið. Ég hef heyrt að sumir setju neðri fóðringuna í first og noti svo gamla boltan til að draga efri fóðringuna í á eftir en ég á eftir að sannprófa þetta. Sérverkfærin eru skilst mér topplyklasett og hamar.