Síða 1 af 1

Bremsurör að aftan farið

Innsent: 23 Jún 2015, 18:01
frá ElliV
Nú var martröðin að ganga í garð. Ég hef s.s. skipt um bremsurörin bæði að framan og var það frekar þægilegt en ég gat ekki hugsað mér að fara standa í því að skipta um þau að aftan og því spyr ég, hvert er best að fara með E320 W210 bíl í svona verk? hverjir eru góðir og ódýrir?

Re: Bremsurör að aftan farið

Innsent: 23 Jún 2015, 19:44
frá hjalti.g
Bíla-doktorinn eða DogC :wink:

Re: Bremsurör að aftan farið

Innsent: 23 Jún 2015, 20:23
frá ElliV
Er ekkert betra að fara á verkstæði sem sérhæfa sig í bremsuviðgerðum? :roll:

Re: Bremsurör að aftan farið

Innsent: 24 Jún 2015, 17:48
frá hjalti.g
Ég veit bara ekki um svoleiðis verkstæði, það eru nánast öll bílaverkstæði í bremsuviðgerðum :?

Re: Bremsurör að aftan farið

Innsent: 29 Jún 2015, 17:36
frá Lárusson
Sérhæft bremsuerkstæði er t.d. Bremsan á Smiðjuvegi 20c, græn gata. Ingþór heitir eigandinn og er buinn að vera lengi í þessum bransa. Hann keypti fyrir mörgum árum verkstæði sem hét Álímingar og einhverjir hér muna örugglega eftir.

Re: Bremsurör að aftan farið

Innsent: 16 Júl 2015, 10:52
frá ElliV
Ég fór með bílinn til doktorsins, þeir settu ný rör frá þar sem rörin voru góð undir bílnum og útí bæði hjól að aftan, í leiðinni skiptu þeir um slöngurnar, festingar & bremsuvökva aftöppunar skrúfurnar á dælunum og allt úðað með ryðvörn. Vel unnið, voru fljótir og kostaði 80k.