Síða 1 af 1

Pakkdós í stýrisdælu.

Innsent: 08 Okt 2014, 20:28
frá sveinn
Best að setja þetta frekar hér en á Facebook...
Þetta er framan á vökvastýrisdælu á Mercedes-Benz M100 mótor, en þessi framendi tengist loftdælu sem er beltadrifin og snýr þá báðum dælum. Loftdælan er smurð með olíu frá vélinni og smyr hún líka þessi samskeyti.

Vandamálið er að þessi pakkdós þarna framan á vökvastýrisdælunni er sennilega farin og á því olía frá vélinni greiða leið inn í hana og sjálfskiptivökvi kemst sömu leið til baka. Skiptast því þessar dælur á vökva eftir þrýstingi. Sjálfskiptivökvi hefur augljóslega ekki góða smureiginleika, því loftdælan er farin. Auk þess grunar mig að ég hafi verið að glíma við ýmis önnur vandamál sem gæti mátt rekja til sjálfskiptivökva í smurolíunni.

Mín spurning er, þar sem ég hef aldrei skipt um pakkdós, er hægt að ná svona pakkningu úr og setja nýja í án þess að rífa dæluna í sundur? Hvernig er þetta almennt gert og hvar fær maður annars svona pakkdós? Finn þetta ekki í EPC.

Svona útleikur sjálfskiptivökvi gúmmíþéttihringi :)

Re: Pakkdós í stýrisdælu.

Innsent: 08 Okt 2014, 21:11
frá hjalti.g
Þú mælir utanmál á dósinni og svo sverleikann á öxlinum og kaupir pakkdós eftir þeim málum, t.d. í Fálkanum. Maður plokkar pakkdósina úr með t.d. mjóu skrúfjárni, getur verið ágætt að reka það á kaf í miðja pakkdósina og spenna hana úr, bara passa að skemma ekki sætið fyrir hana :D

Re: Pakkdós í stýrisdælu.

Innsent: 08 Okt 2014, 22:58
frá sveinn
Takk fyrir þetta Hjalti :)

Ætla að gera þetta upp í rólegheitunum í vetur, bæði loftpressu og stýrisdælu til að eiga til vara.

En þetta er auðvitað komið í lag því ég keypti nýtt sett og það er komið í...