Síða 1 af 1
Sætaspurning rafmagn
Innsent: 16 Sep 2014, 20:37
frá kaggi
Ég er að spá í að skipta um framsæti í bílnum hjá mér og fara yfir í rafmagnssæti en hvernig er það ef ég skipti er þetta major vesen uppá að græja rafmagn í það þetta er W124
Re: Sætaspurning rafmagn
Innsent: 16 Sep 2014, 22:17
frá Benni
Þekki það ekki en ef þú "googlar" þetta þá hafa menn augljóslega gert þetta.
Ég prófaði þetta og það kom ýmislegt upp
https://www.google.is/?gws_rd=ssl#q=ins ... +seat+w124" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Sætaspurning rafmagn
Innsent: 16 Sep 2014, 23:08
frá kaggi
Góður maður google klikkar ekki
Re: Sætaspurning rafmagn
Innsent: 16 Sep 2014, 23:25
frá Benni
Ef þú finnur rétta svarið, sem passar, þá máttu alveg pósta því hér.
Að ég tala nú ekki um ef þú ferð í framkvæmdina.
Okkur langar til að byggja upp almennilegan "Do It Yourself" þráð hérna og væri þetta þá góð viðbót við það sem komið er

Re: Sætaspurning rafmagn
Innsent: 17 Sep 2014, 16:27
frá hjalti.g
Það er talsvert pot að rafmagnsvæða bíl sem er ekki með rafmagni í sætum, þegar ég skipti um innréttingu í mínum þá færði ég leðrið yfir á sætagrindina sem var fyrir í bílnum og hafði allt handstýrt áfram, það var tiltölulega einfalt

Re: Sætaspurning rafmagn
Innsent: 17 Sep 2014, 18:51
frá Hlynzi
Vandamálið er að allt vírabúntið sem tengist rofanum þarf eiginlega að fara á milli líka, þú gætir þó fært rofann nær sætinu svo þú þurfir ekki að leggja víra frá sæti yfir í hurðina, en þá þarf að finna stað fyrir rofann, gæti samt verið einfallt ef vírarnir fara með fram sílsanum, hef aldrei skoðað það.