Síða 1 af 2

Útleiðsla W124

Innsent: 01 Jún 2014, 18:51
frá BragiGuðna
Sælir félagar.

Nú er ég í stökustu vandræðum með stjörnuna hjá mér. W124 E300 turbodiesel '93. Það sem gerist er að hann tæmir rafgeyminn ef hann stendur í 3-4 daga, stundum minna. Er með stóran nýlegan geymi 100 Ah og alternatorinn var nýlega yfirfarinn. Er búinn að leita og leita en finn ekki útleiðsluna. Er eitthvað þekkt vandamál með útleiðslu í þessum bílum? Dettur í hug hvort eitthvert relay stendur á sér eða hvað. Það á nú ekki að vera straumur á neinu nema klukkuni þegar maður svissar af. Er búinn að prufa að taka öll öryggin úr öryggjaboxinu (líka fyrir webasto olíumiðstöðina) en útleiðslan heldur áfram.

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 01 Jún 2014, 19:03
frá BragiGuðna
Getur bilað yfirspennurelay valdið svona vandamáli?

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 01 Jún 2014, 20:33
frá Þröstur
Prófaðu að taka alternatorinn úr sambandi.

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 01 Jún 2014, 21:49
frá BragiGuðna
Þröstur skrifaði:Prófaðu að taka alternatorinn úr sambandi.
Ég er búinn að útiloka útleiðslu við alternator, en takk samt.

Prófaði í kvöld að raðtengja 5W peru á plús pólinn, og hún blikkar dauft í takt við beltissætaljósið þegar ég loka hurð á bílnum, en ekkert ljós í biðstöðu. Þannig að útleiðslan er ekki til staðar lengur. Mældi einhverntímann rúmlega 1 A útleiðslu með ampermælingu en þetta virðist koma og fara. Hvað segja fróðir menn við þessu?

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 02 Jún 2014, 12:08
frá BaraBenz
Getur verið erfitt að finna svona. Bilun sem er bara stundum.

Hvernig er það, slökknar örugglega á ljósinu í skottinu? Smá hugmynd.

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 02 Jún 2014, 16:14
frá Gunnar Örn
Er einhver aukarafbúnaður í bílnum, fjarstýring á samlæsingar, magnari fyrir útvarpið eða slíkt?

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 03 Jún 2014, 21:00
frá Hlynzi
Það gæti líka virkað, til að einangra bilunina frekar að rífa öll öryggi úr öryggjaboxinu og setja eitt til baka í einu og athuga hvort eitthvað breytist.

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 04 Jún 2014, 10:42
frá AM
Hlynzi skrifaði:Það gæti líka virkað, til að einangra bilunina frekar að rífa öll öryggi úr öryggjaboxinu og setja eitt til baka í einu og athuga hvort eitthvað breytist.
Sammála.. eða öfuga aðferð, taka alltaf eitt úr sambandi

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 04 Jún 2014, 14:58
frá Benni
Ég var að lenda í þessu sama. Ljósið í skottinu virtist vera vandamálið og tók ég því bara peruna úr en það var samt ekki það eina sem var að.
Tókum öryggið fyrir ljósin í mælaborðinu og eiginlega allt rafmagn inní bílnum (samlæsingar, þjófavörn etc.) og þá hætti þetta "vesen".

Nú er það nýjasta að stefnuljósin eru hætt að virka þannig að það er eitthvað meiriháttar að.

Fékk lánað relay hjá Jóni Ketils og prófaði það á sínum tíma en það reyndist ekki breyta neinu.

Re: Útleiðsla W124

Innsent: 05 Jún 2014, 22:16
frá BragiGuðna
Þakka svörin.
Er búinn að prufa að taka öll öryggin úr öryggja boxinu eitt og eitt, en útleiðslan hélt áfram þá. Peran er ekki í ljósinu í skottinu.
Hef tekið eftir því að ABS ljósið logar stundum, aðallega yfir veturinn en samt mjög sjaldan. Eftir talsverða google leit bendir slíkt til þess að þetta yfirspennurelay sé að svíkja öðru hvoru, og það getur einnig valdið útleiðslu segja þeir. Las líka einhverstaðar að líftíminn á þessu relayi sé um 20 ár og þá fer það að svíkja, bíllinn er einmitt 21 árs í ár. Ætla að prufa að endurnýja þetta yfirspennurelay áður en ég geri nokkuð meira í þessu. Læt ykkur vita ef þetta lagast.

Kv. Bragi