Síða 1 af 1

Hurð á 300CE

Innsent: 05 Maí 2014, 23:06
frá Vidir
Oft með aldri eiga hlutir til að síga og svo virðist sem hurðir á 2 dyra Benz-um sé enginn undantekning.

Farþegahurðin opnast og lokast með miklum þægindum. Einning stoppar hún og heldur á réttum stöðum.

Bílstjórahurðin er skiljanlega vegna meiri notkunar ekki alveg jafn góð. Er ágætlega sigin og þarf að loka og opna með miklum krafti. Einnig helds hún ekki opinn í litlum halla né stoppar hún í miðjunni á áætlðuðum stað.

Þarf að skipta um lamirnar og "Stopparann"(Check strap) og ef svo hvar er best að nálgast svoleiðis búnað á sanngjörnu verði?

Re: Hurð á 300CE

Innsent: 10 Maí 2014, 21:43
frá andrz
Til að byrja með gætiru tekið venjulegann hjólatjakk og tjakkað aðeins undir hurðina til að reyna að fá hana hærra. Gott að setja spýtukubb á milli tjakks og hurðar. Þetta er samt bara tímabundin lausn. Athugaði að setja tjakkinn eins aftarlega á hurðina og mögulegt er upp á vogaraflið.

Myndi athuga með lamir í umboðinu eða á ebay, strekkjarann ættiru að geta fengið í AP í Kópavogi. Ólíklega lumar hann á hurðarlömum en gætir spurt í leiðinni.