Síða 1 af 1

opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 00:01
frá nocf6
ég er með w211 sem er rafmagnslaus og geymirinn í skottinu og skottið opnast hvorki með lyklinum né með takkanum, er einhver leið til að opna skottið öðruvísi?

Re: opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 12:51
frá Logi
Er ekki bara auðveldast að opna húddið og gefa straum þar með köpplum úr öðrum bíl?

Re: opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 12:53
frá Logi
Plúsinn ætti að vera undir svona sambærilegu loki: og festa mínus kapalinn í boddý...

Re: opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 15:04
frá nocf6
Það eru engir svona start punktar undir húddinu, skilst á því sem ég hef lesið að það komi ekki svoleiðis í w211. ég náði að koma straum á hann ég gegnum eh box undir teppinu farþegamegin, nóg til þess að svissa á hann en ekki nóg til að starta. og allt virkar núna nema skottopnunin, hvorki á fjartýringunni, handfanginu á skottinu né takkanum í hurðinni, allt annað virðist virka, samlæsingar, keyless entry, ljósin, allt neeema skottið, þó blikkar rautt ljós á lyklinum þegar ég tek í handfangið á skottinu en ekkert annað gerist

Re: opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 15:44
frá Logi
:shock: Það er þá til einn kostur sem W210 hefur framyfir W211 :lol:

Re: opna skott á w211

Innsent: 13 Feb 2014, 19:22
frá Þröstur
nocf6 skrifaði:Það eru engir svona start punktar undir húddinu, skilst á því sem ég hef lesið að það komi ekki svoleiðis í w211. ég náði að koma straum á hann ég gegnum eh box undir teppinu farþegamegin, nóg til þess að svissa á hann en ekki nóg til að starta. og allt virkar núna nema skottopnunin, hvorki á fjartýringunni, handfanginu á skottinu né takkanum í hurðinni, allt annað virðist virka, samlæsingar, keyless entry, ljósin, allt neeema skottið, þó blikkar rautt ljós á lyklinum þegar ég tek í handfangið á skottinu en ekkert annað gerist
Það er bilun í kaplinum sem liggur í skottlokið, ég er ekki lengi að laga þetta.

Re: opna skott á w211

Innsent: 14 Feb 2014, 02:33
frá nocf6
Þröstur skrifaði:
Það er bilun í kaplinum sem liggur í skottlokið, ég er ekki lengi að laga þetta.
Þettta er komið í lag að einhverju leiti allavega, Eftir að hafa haft hleðslutæki á þessum kapli undir mælaborðinu í sólahring þá allt í einu virkuðu takkarnir, skottið opnaðist og hann rétt hafðist í gang, skottopnunin virðist ekki virka nema hann sé nánast fullhlaðinn, þori samt ekki að loka því aftur án þess að liðka upp cylenderinn og manual opnunar unitið. þakka ráðin samt :D

Re: opna skott á w211

Innsent: 22 Feb 2014, 02:13
frá valdi
keyptir þú svartann e200 eða gráann e200 á tjónaútboði fyrir nokkrum vikum síðan ?

Re: opna skott á w211

Innsent: 10 Mar 2014, 01:42
frá nocf6
valdi skrifaði:keyptir þú svartann e200 eða gráann e200 á tjónaútboði fyrir nokkrum vikum síðan ?
þetta er svartur e400cdi sem ég fékk á tjónauppboði fyrir nokkrum vikum