Síða 1 af 1

Vantar ekki eitthvað á þessa mynd?

Innsent: 16 Jún 2013, 14:13
frá Haffij
Góðan daginn Benz áhugamenn.

Ég á s124 með m104 mótor. Bílinn keypti ég ógangfæran með ónýtu vélarrafkerfi.

Bílinn er fyrir löngu kominn í gang en það er ein spurning sem hefur plagað mig síðan ég setti nýja rafkerfið á hann. Það var nefnilega eitt plögg sem ég fann engan stað fyrir.

Ef ég gúggla vandann þá fæ ég myndir sem að sýna að umrætt plög virðist eiga að styngast í samband við einhvern hitanema við vatnslásinn.

Þann skynjara vantar í bílinn minn. Getur verið að þetta sé eitthvað mismunandi á milli bíla eða hefur þessi nemi bara verið fjarlægður út bílnum mínum í einhverju rugli af fyrr eigendum?

Á myndinni hérna fyrir neðan má sjá plöggið sem á engan maka og svo tappa fyrir neðan vatnsláshúsið. Þarna virðist vera skynjari í mörgum bílum.



Hitamælirinn virkar eðliega í bílnum. Veit einhver hérna eitthvað um málið? Vantar mig skynjara eða getur verið að hann eigi ekki að vera í bílnum mínum?

Kv. Haffi

Re: Vantar ekki eitthvað á þessa mynd?

Innsent: 16 Jún 2013, 16:34
frá Haffij
Eg fann tessa mynd af eins vel a netinu.



Tharna er stort tengi tar sem ad eg hef bara blindlok.