w210 fyllist af móðu, fastur á innilofti eða eitthvað annað?

#1
Jæja drengir.

Nú leita ég til ykkar snillingana.

Er með w210 E class Benz sem tók allt í einu uppá því að fyllast af móðu á keyrslu. Það er sama hvað ég fikta í miðstöðinni, ekkert breytist. Mér svona datt í hug hvort hann hafi lokað á útiloftið ??

Hann er samt kannski ekki beint að fyllast af móðu en þetta er samt óþolandi ástand. Maður þarf að opna rúðu af og til.



Ekki hefur einhver lent í þessu eða hefur hugmynd um hvað ég á að gera til að laga þetta ???


Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: w210 fyllist af móðu, fastur á innilofti eða eitthvað an

#4
http://mbworld.org/forums/e-class-w210/ ... -here.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Myndir hér af svipuðu verki.

Eins og Logi segir líklegast er þetta frjókornasían, ég var að lenda í þessu á E420 hjá mér, tók síuna úr einhverntímann og hún var vel rök.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: w210 fyllist af móðu, fastur á innilofti eða eitthvað an

#7
Jæja ég opnaði þetta og það er bara engin sía í bílnum.

Opnaði fyrst hólfið við hlið miðstöðvarmótorsins, það var bara galtómt. Ég reif þá bara miðstöðvarmótorinn úr til að ganga úr skugga um að þar leyndist ekki sía. En nei nei þar var ekkert heldur... neema að þar sá ég að flipinn á útiloftið var lokuð ! Ég rétt svo kom við hana og hún opnaðist. Ég setti bílinn í gang og prufaði takkann góðan og flipinn opnast og lokast eins og höfðingi. Þannig að já ég veit ekki alveg afhverju þetta stóð svona á sér.

Þannig að já þetta leiddi til þess að málið virðist vera leyst ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: w210 fyllist af móðu, fastur á innilofti eða eitthvað an

#9
Ásgeir Yngvi skrifaði:Jæja ég opnaði þetta og það er bara engin sía í bílnum.

Opnaði fyrst hólfið við hlið miðstöðvarmótorsins, það var bara galtómt. Ég reif þá bara miðstöðvarmótorinn úr til að ganga úr skugga um að þar leyndist ekki sía. En nei nei þar var ekkert heldur... neema að þar sá ég að flipinn á útiloftið var lokuð ! Ég rétt svo kom við hana og hún opnaðist. Ég setti bílinn í gang og prufaði takkann góðan og flipinn opnast og lokast eins og höfðingi. Þannig að já ég veit ekki alveg afhverju þetta stóð svona á sér.

Þannig að já þetta leiddi til þess að málið virðist vera leyst ;)

Jáhjá...!!! Eitthver búinn að taka ódýru leiðin og henda síunni... :lol: :lol: :lol: Það er vont að hafa einga síu, sérstaklega ef það er mjög þurrt veður úti og kanski verið að glamra á þurrum malarvegi. Þá kemur allur rykviðbjóður inn í bílinn og veldur óþolandi skítalofti í bífreiðinni...!! Ég myndi hringja í "mig" og fá í þetta síu fyrir sumarið.... :wink: HEHE
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: w210 fyllist af móðu, fastur á innilofti eða eitthvað an

#10
haha já þetta er magnað. En á sían sem sagt að vera í hólfinu hliðiná miðstöðvarmótornum ?

En svona þegar þú segir þetta Rúnar þá er maður alltaf strjúkandi af helvítis mælaborðinu á honum á sumrin. Þessi bíll fer líka fleiri fleiri km á malarvegi á hverjum degi.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin
cron