Síða 1 af 2

Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 13 Apr 2013, 00:14
frá Bjartmar
Ég er með W202 C180 '95 sem ég kemst ekki inní.
Fjarstýringin sem ég hef notað í 3 ár virkar ekki. Ég reyndi að opna farþega megin með lyklinum en ég kem honum ekki í skránna.

Ég sótti varalyklana sem hafa aldrei verið notaðir eftir að ég eignaðist bílinn. Þeir virka ekki heldur.

Ég fór og keypti ný battery og skipti um í fjarstýringunum og þær virka hvorugar.

Á morgun ætla ég að kaupa lásasprey og reyna koma lyklinum í. En ég reikna samt með því að geta ekki notað bílinn vegna ræsivarnarinnar?

Ég er næstum því pottþéttur á því að hann sé ekki rafmagnslaus?

Svo... Hvað í ósköpunum gæti ég gert næst?

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 13 Apr 2013, 20:30
frá Hlynzi
Ertu með svona lykil ?

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 14 Apr 2013, 01:43
frá Þröstur
Bjartmar skrifaði:Ég er með W202 C180 '95 sem ég kemst ekki inní.
Fjarstýringin sem ég hef notað í 3 ár virkar ekki. Ég reyndi að opna farþega megin með lyklinum en ég kem honum ekki í skránna.

Ég sótti varalyklana sem hafa aldrei verið notaðir eftir að ég eignaðist bílinn. Þeir virka ekki heldur.

Ég fór og keypti ný battery og skipti um í fjarstýringunum og þær virka hvorugar.

Á morgun ætla ég að kaupa lásasprey og reyna koma lyklinum í. En ég reikna samt með því að geta ekki notað bílinn vegna ræsivarnarinnar?

Ég er næstum því pottþéttur á því að hann sé ekki rafmagnslaus?

Svo... Hvað í ósköpunum gæti ég gert næst?
Ég get til dæmis komið og opnað hann.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 14 Apr 2013, 10:59
frá Bjartmar
Hlynzi: Já, ég er með svona lykil. Ég var búinn að finna leiðbeiningar hvernig ég synqa hann aftur við bílinn þegar ég kæmist inn í hann.

Þröstur: Hvernig gætir þú komist inn í bílinn?

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 14 Apr 2013, 15:48
frá Hlynzi
Bjartmar skrifaði:Hlynzi: Já, ég er með svona lykil. Ég var búinn að finna leiðbeiningar hvernig ég synqa hann aftur við bílinn þegar ég kæmist inn í hann.

Þröstur: Hvernig gætir þú komist inn í bílinn?
Prófaðu að setja á myndavélina í símanum þínum, þá geturu prófað að snúa lyklinum að henni og ýta á takkann og sérð þá innrauða ljósið sem kemur frá lyklinum, svona til að vera pottþéttur á að hann virki.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 14 Apr 2013, 21:14
frá Bjartmar
Hlynzi skrifaði:
Bjartmar skrifaði:Hlynzi: Já, ég er með svona lykil. Ég var búinn að finna leiðbeiningar hvernig ég synqa hann aftur við bílinn þegar ég kæmist inn í hann.
Prófaðu að setja á myndavélina í símanum þínum, þá geturu prófað að snúa lyklinum að henni og ýta á takkann og sérð þá innrauða ljósið sem kemur frá lyklinum, svona til að vera pottþéttur á að hann virki.
Ég sé ekkert á aðallyklinum.
En á varalyklinum sé ég ljósið greinilega með augunum og enn greinilegra með myndavél.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 14 Apr 2013, 21:58
frá Hlynzi
Bjartmar skrifaði:

Gæti verið að þú sért að lenda í sama vandamáli og ég með minn um daginn, þá datt rofinn úr lyklinum (sambandið rofnaði við prentplötuna)
http://forums.mercedesclub.org.uk/showt ... hp?t=26895" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta eru myndir úr einmitt W202, og þar sem það kemur ekkert á aðallyklinum þrátt fyrir nýja rafhlöðu grunar mig þetta.
Svo veit maður ekki hvort að varalykilinn sé synkaður við bílinn.
Þú getur kíkt til mín með lykilinn og ég get lagað þetta fyrir þig ef þú treystir þér ekki í það sjálfur.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 15 Apr 2013, 01:39
frá Bjartmar
Ég prófaði aftur að fara út með varalykilinn og nú er hann allt í einu farinn að virka á bílinn.

En ég var einmitt að hugsa þetta í dag hvort að takkinn gæti verið laus frá... Því mér finnst allt öðruvísi að ýta á takkann á aðallyklinum en varalyklinum.

Ég ætlaði að prófa að opna lykilinn og sjá hvort hann sé laus frá. Það er bara djöfulli stíft.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 15 Apr 2013, 01:56
frá Hlynzi
Bjartmar skrifaði:Ég prófaði aftur að fara út með varalykilinn og nú er hann allt í einu farinn að virka á bílinn.

En ég var einmitt að hugsa þetta í dag hvort að takkinn gæti verið laus frá... Því mér finnst allt öðruvísi að ýta á takkann á aðallyklinum en varalyklinum.

Ég ætlaði að prófa að opna lykilinn og sjá hvort hann sé laus frá. Það er bara djöfulli stíft.
Mér fannst best að stinga skrúfjárni á milli járnhlutans á lyklinum og plastsins, það er góður punktur til að spenna hann í sundur. En þetta er nokkuð örugglega takkinn, hugsanlega gæti takkinn á varalyklinum líka verið lélegur og þessvegna hefur hann ekki virkað í fyrstu tilraun.

Re: Kemst ekki inn í bílinn.

Innsent: 15 Apr 2013, 11:57
frá Bjartmar
Hlynzi skrifaði:Mér fannst best að stinga skrúfjárni á milli járnhlutans á lyklinum og plastsins, það er góður punktur til að spenna hann í sundur. En þetta er nokkuð örugglega takkinn, hugsanlega gæti takkinn á varalyklinum líka verið lélegur og þessvegna hefur hann ekki virkað í fyrstu tilraun.
Ég næ engan veginn að spenna hann í sundur. Hann hlítur að vera límdur saman eða e-ð.
Ég talaði við frænda minn sem er fyrri eigandi bílsins. Hann sagðist einmitt hafa lent í þessu fyrir mörgum árum.