Síða 1 af 1
Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 18 Feb 2013, 23:56
frá olafurf
Sælir nú
Ég ákvað að taka myndband af hávaðanum í mótornum hjá mér og var að spegúlera hvort þetta væri viðgerðarhæft eða... ónýtt :l
Ásamt því að miðstöðvarhnappurinn sem stýrir hraðanum er í eitthverju rugli, er búinn að taka hann í sundur og mæla mótstöðuna, hún mælist rétt ásamt öllu borðinu..
Er einhver með ráð á þessa hluti fyrir mig

Re: Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 19 Feb 2013, 01:14
frá Þröstur
Smyrja fóðringarnar með eihverju góðu efni.
Re: Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 19 Feb 2013, 07:55
frá olafurf
Ég er búinn að taka mótorinn í sundur og smyrja eitthva af honum, er bara ekki klár hvað má og má ekki smyrja ^^,
Re: Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 19 Feb 2013, 09:00
frá Mercedes-Benz
Það þarf að taka mótorinn úr og athuga hvort að það er nokkuð mikil mótstaða í honum. (þungur að snúa honum eða ef honum er snúið hvort hann stoppar alveg strax). Ef það er mikil mótstaða í honum að þá er það reynslan að það þýðir ekki neitt að smyrja þetta. Menn geta náð sér í frið í eitthverja daga, en ekki mjög lengi. Ef þetta er smurt þarf líka að athuga með hverju því það má eiginlega ekki vera með neinu sem ryk getur sest í. Rykið og olían verður þá eins og slípimassi og klárar fóðringarnar mjög fljótt.
Re: Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 19 Feb 2013, 09:30
frá olafurf
hann stöðvast frekar hratt.. þannig.. jeyyy þarf að kaupa nýtt
Takk samt fyrir ábendinguna !! En einhverja hugmynd með miðstöðvarhnappinn ?
Re: Miðstöðvarmótor, skrítið hljóð, myndband
Innsent: 20 Feb 2013, 00:36
frá Mercedes-Benz
olafurf skrifaði:hann stöðvast frekar hratt.. þannig.. jeyyy þarf að kaupa nýtt
Takk samt fyrir ábendinguna !! En einhverja hugmynd með miðstöðvarhnappinn ?
Er ekki bara mótorinn og mótstaðan (hraðastýringin) ónýtt... Mótstöðurnar gefa sig oft ef mótorinn er orðin svona þungur. Ég á nýtt handa þér sýnist mér. Í hvaða bíl er þetta?