Síða 1 af 1

SBC Unit í W211 body, blackmail – Visit workshop

Innsent: 04 Feb 2013, 22:24
frá toti62
SBC Unit í W211 body, blackmail – Visit workshop
Ég veit fyrir víst að margir eigendur að Mercedes W211 2002-2006 hafa verið að lenda í því að Askja neitar að borga og skipta út SBC dælunni, sem er td. Í ábyrgð í 10 ár í USA, hér virðist þetta vera geðþóttaákvörðun í hvert sinn. Ég er með E-500 og skilaboðin hjá mér komu í mælaborðið fyrir ca. 1,5 ári síðan um að : Brakes faulty- visit workshop, lét lesa tölvuna og fram kom að það væri sbc dælan væri búinn með líftímann, Kostnaðurinn tæp 500.000,- með vinnu.
Sumir fengu þetta allt frítt, aðrir helming og svo enn aðrir ekki neitt. Þar sem þessi dæla virðist ekki endast líftíma bílsins, þá þorði maður ekki annað en að finna leið til að láta laga þetta án þess að stofna sér og öðrum í lífshættu með skyndilegu bremsuleysi eða að láta setja sig í skuldafangelsi. Það tókst núna í janúar, dælan keypt frá usa og sett í hér heima, heildarkostnaður 180.000,- PS. Í USA buðu þeir að taka gömlu dæluna uppí á 250 usd, hér hirða þeir hana án endurgjalds.

Re: SBC Unit í W211 body, blackmail – Visit workshop

Innsent: 09 Feb 2013, 19:08
frá Mercedes-Benz
Þetta er ekki geðþóttaákvörðun Öskju. Málið er að framleiðandi dælunnar Bosch er farin að neita Mercedes-Benz um ábyrgð á þessum dælum og hefur sett ákveðnar reglum um bætur á þeim. Í dag er það nánast svo að engin af þessum SBC dælum er lengur í ábyrgð í Evrópu og það er ákvörðun hjá Bosch. Fyrir vikið er orðið mikið um uppgerðar dælur á markaðnum og hjá Bíla-Doktornum er meðal annars hægt að fá uppgerðar svona dælur frá Bretlandi.