Síða 1 af 2
Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 12 Jan 2013, 18:54
frá Haffij
Sælir spekingar.
Ég er með w124 1990 módel, hann er með loftpúða í stýrinu og fyrir framan farþegann frammí.
Nú eru þessir púðar væntanlega orðnir 23 ára gamlir.
Eiga þessir púðar að vera ódrepandi búnaður? Er engin hætta á að efnið í þessu sé orðið þurrt eða morkið eða að gasið sem sprengir þetta út sé löngu lekið úr hylkjunum?
Vitið þið hvort að verksmiðjan hafi gefið eitthvað út um endingu á þessum búnaði?
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 12 Jan 2013, 23:08
frá gmg
Ég er nýlega búinn að sjá myndskeið frá Mercedes þar sem að þeir keyptu 30 ára w126 með loftpúðum ( Airbags ), settu bíllinn í klessupróf og loftpúðarnir virkuðu 100 %

Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 13 Jan 2013, 05:00
frá Gizmo
það eru engin gashylki í airbag, það er púðurmagn svipað og meðal handsprengja er fyllt af.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 13 Jan 2013, 19:35
frá Lindemann
Gizmo skrifaði:það eru engin gashylki í airbag, það er púðurmagn svipað og meðal handsprengja er fyllt af.
Það er ekki heldur rétt.....
Það eru efni sem virkjast við rafboð sem fylla loftpúðan af N2 gasi(sem verður til við efnahvörf), Það er ekki púður sem sprengir út púðann.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 13 Jan 2013, 21:31
frá Gizmo
kallaðu sprengiefnið það sem þú vilt, ef menn vilja flækja málin svo enginn skilji þetta eða hvað það er þá er um að gera að setja fram td efnaformúluna um ferlið fram, sem er eftirfarandi:
(1) 2 NaN3 → 2 Na + 3 N2 (g)
(2) 10 Na + 2 KNO3 → K2O + 5 Na2O + N2 (g)
(3) K2O + Na2O + 2 SiO2 → K2O3Si + Na2O3Si
Á íslensku kallast svona viðburður sprenging.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 13 Jan 2013, 21:45
frá Haffij
Takk fyrir svörin drengir.
Ég var að virkilega að vona að einhver myndi sannfæra mig um að þetta væri ónýtt því mig langar svakalega mikið til að losa mig við loftpúðann farþegamegin og fá mér hanskahólf í staðinn.
Ef það væri sannað að púðinn hefði bara ákveðinn líftíma væri mun auðveldara að sannfæra sig um að taka hann.
Eins og ég er ofsalega ánægður með bílinn skil ég ekkert í Benz að hafa alveg sleppt hanskahólfi. Mig vantar svakaleg mikið pláss fyrir draslið sem ég er vanur að hafa í hanskahólfinu. Svo vantar líka alveg stað til að geyma vatnsflösku án þess að hún geti rúllað um allan bíl.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 14 Jan 2013, 09:17
frá Hlynzi
Haffij skrifaði:Takk fyrir svörin drengir.

Á þessum tíma virðist loftpúðinn hafa verið hannaður í innréttinguna og ekki pláss fyrir hanskahólf, en ertu þá ekki með box á milli sætanna, undir eins og armpúðanum ?
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 14 Jan 2013, 10:46
frá Þröstur
Hlynzi skrifaði:Haffij skrifaði:Takk fyrir svörin drengir.
Ég var að virkilega að vona að einhver myndi sannfæra mig um að þetta væri ónýtt því mig langar svakalega mikið til að losa mig við loftpúðann farþegamegin og fá mér hanskahólf í staðinn.
Ef það væri sannað að púðinn hefði bara ákveðinn líftíma væri mun auðveldara að sannfæra sig um að taka hann.
Eins og ég er ofsalega ánægður með bílinn skil ég ekkert í Benz að hafa alveg sleppt hanskahólfi. Mig vantar svakaleg mikið pláss fyrir draslið sem ég er vanur að hafa í hanskahólfinu. Svo vantar líka alveg stað til að geyma vatnsflösku án þess að hún geti rúllað um allan bíl.
Á þessum tíma virðist loftpúðinn hafa verið hannaður í innréttinguna og ekki pláss fyrir hanskahólf, en ertu þá ekki með box á milli sætanna, undir eins og armpúðanum ?
Það er ekkert mál að breyta þessu ég er búinn að hræra með svona fram og til baka.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 14 Jan 2013, 11:52
frá Benzari
Haffij skrifaði:Takk fyrir svörin drengir.
Ég var að virkilega að vona að einhver myndi sannfæra mig um að þetta væri ónýtt því mig langar svakalega mikið til að losa mig við loftpúðann farþegamegin og fá mér hanskahólf í staðinn.
Ef það væri sannað að púðinn hefði bara ákveðinn líftíma væri mun auðveldara að sannfæra sig um að taka hann.
Eins og ég er ofsalega ánægður með bílinn skil ég ekkert í Benz að hafa alveg sleppt hanskahólfi. Mig vantar svakaleg mikið pláss fyrir draslið sem ég er vanur að hafa í hanskahólfinu. Svo vantar líka alveg stað til að geyma vatnsflösku án þess að hún geti rúllað um allan bíl.
Á einum af W124 sem ég átti var endingartími loftpúðanna skráður á límmiða í hurðarfalsi. Bara algjörlega stolið úr mér hver endingartíminn var.
Re: Eldgamlir loftpúðar
Innsent: 14 Jan 2013, 16:11
frá Haffij
Já, ég er með hólf undir armpúðanum til að vega upp á móti hanskahólfsskortinum.
Það er bara svo lítið, það er eiginlega bara fullt þegar að ipod og sólgleraugu eru komin ofan í það.
Er ekki hanskahólfið í þessum bílum (þeim sem eru með það á réttum stað) risastórt?