Síða 1 af 2
Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 30 Júl 2012, 02:04
frá DarkHelmet
Langar að spyrja ykkur sérfræðingana hér hvort þið gætuð haft hugmynd hvað sé á seyði með Benzann minn.
Nú er ég að lenda oft í því að Benzinn starti í um 5 sekúndur áður en vélin tekur við sér. Um er að ræða E320 Benz árg 1999.
Getur þetta verið bensíndælan?
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 30 Júl 2012, 14:08
frá sveinn
Lætur hann svona þegar hann er heitur eða kaldur, ...eða bara alltaf?
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 30 Júl 2012, 14:37
frá DarkHelmet
sveinn skrifaði:Lætur hann svona þegar hann er heitur eða kaldur, ...eða bara alltaf?
Hef ekki alveg náð að kortleggja það en finnst eins og hann láti svona þegar hann hefur verið í gangi og er svo settur í gang fljótlega aftur.
Olíusíunni var skipt út um daginn þar sem við heldum að það væri málið en það virðist ekki hafa lagað þetta.
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 30 Júl 2012, 21:50
frá Þröstur
Hvað er búið ð keyra bílinn?
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 00:02
frá DarkHelmet
Þröstur skrifaði:Hvað er búið ð keyra bílinn?
255þ km.
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 00:05
frá Þröstur
Er búið að skipta um tímakeðju og strekkjara?
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 00:10
frá DarkHelmet
Þröstur skrifaði:Er búið að skipta um tímakeðju og strekkjara?
Er nokkuð viss á að það hafi verið gert fyrir stuttu, þó ekki 100%.
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 00:30
frá Þröstur
Láttu lesa af honum, ef það er ekki villa á sveifarás eða knastásskynjara þá hljómar þetta örlítið eins og tímakeðjustrekkjarinn sé farinn að leka illa. Það geta komið svokallaðar synchronise villur ef svo er.
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 11:12
frá joolli
Sæll,
Áður en þú lætur lesa af honum þá væri sniðugt að athuga bensín þrýstijafnaran (Fuel Pressure Regulator). Hann er á endanum á spíssarörinu og er kringlóttur með totu sem sogröri er smokrað upp á.
Hann gæti litið einhvernvegin svona út nema að þú myndir bara sjá efri partinn af honum:
[img]
http://t2.gstatic.com/images?q=tbn:ANd9 ... ebZJY-W59A[/img]
Prófaðu að taka sogslönguna af stútnum á FPR og athugaðu hvort stúturinn á slöngunni sé nokkuð blautur af bensíni og hvort það sé nokkuð sterk bensín lykt úr honum. Prófaðu svo að ræsa bílinn með slönguna aftengda og láttu hann ganga í svona c.a. 5 mínútur og fylgstu með þrýstijafnaranum (FPR) og athugað hvort hann byrji nokkuð að frussa bensíni.
Einfalt próf sem kostar þig ekkert nema lausagangs-eldsneyti.
Edit: Já og ef hann frussar bensíni þá þarf að skipta um hann. Hann er semsagt að tapa þrýsting á meðan bíllinn stendur og þá þarf bensíndælan að byggja upp nægan þrýsting í bensínleiðslunum svo að spíssarnir geti opnast. Ef bíllinn hjá þér er leiðinlegur í gang eftir að hafa staðið í einhvern tíma (t.d. yfir nótt) en dettur strax í gang eftir stutt stopp þá er þetta vænleg orsök.
Re: Startar í um 5 sek áður en hann fer í gang
Innsent: 31 Júl 2012, 12:27
frá DarkHelmet
Hef fengið ágiskun á það hjá einum þjónustuaðila MB hér á Akureyri að þetta sé bensíndælan.
Hvað segið þið um það? Líklegt?