Síða 2 af 2

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (Mála nöfin)

Innsent: 03 Maí 2013, 20:08
frá Hlynzi
Jæja, þá var tilraun gerð til að mála annað nafið og svo bremsuhlífarnar og fl. ætti að verða þokkalega snyrtilegt.

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (stólpúðar)

Innsent: 21 Jún 2013, 13:51
frá Hlynzi
Vottur af framvindu hér, Bíla Doktorinn fékk svo að setja stólpúðana í rammann fyrir mig. Næst er að blása drif og öxla, ásamt því að skipta um pakkdósir í drifi og síðan verður það málað svart.

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (stólpúðar)

Innsent: 25 Okt 2013, 14:11
frá Hlynzi
Jæja, smá uppfærsla, málaði þetta með Zink-spreyi og svo svart lakk yfir, á eftir að sjá hvernig það kemur út. Næsta svona verður líklegast sent í sóda eða gler-blástur og þessir hlutir sem sjást á myndinni hérna verða raf-zinkaðir.

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (stólpúðar)

Innsent: 25 Okt 2013, 14:46
frá Cronzi
þetta er algjörlega glæsilegt hjá þér Hlynzi !
held það sé nokkuð ljóst að þessi rammi mun endast lengur en flest annað á bílnum :lol:

frábært framtak

Re: Uppgerð á fjöðrunarramma W124 (nýjar stífur)

Innsent: 23 Des 2013, 18:59
frá Hlynzi
Fór í dag og keypti stífusettið, núna verður eitthvað aðeins hægt að fara að raða nýjum hlutum í rammann.