Síða 2 af 3

Re: Hr. X - 2012

Innsent: 08 Apr 2012, 21:16
frá Þröstur
Ég var eitt sinn farþegi í W211 280CDI með BRABUS mótortölvuuppfærslu, sá bíll endurraðaði lífærunum hjá manni.

Re: Hr. X - 2012

Innsent: 10 Apr 2012, 11:49
frá bimmer
Er búinn að taka saman fyrirspurnirnar frá þeim sem sendu tölvupóst,
ættum að fá svör fljótlega við þessum fyrsta skammti.

Re: Hr. X - 2012

Innsent: 12 Maí 2012, 09:50
frá bimmer
Jæja, nú eiga allir að vera komnir með svör sem hafa sent póst hingað til.

Ef einhver hefur ekki fengið svar - sendið mér email á rngtoy@rngtoy.com.

Re: Hr. X - 2012

Innsent: 19 Maí 2012, 00:09
frá bimmer
Ok, nú er það komið á hreint að kallinn kemur í fyrstu vikunni í júní, þe.
á tímabilinu 4. - 10. júní.

Akkurat hvaða dag og hversu lengi hann stoppar fer eftir því hversu marga
bíla á að vinna með.

Þannig að þeir sem ætla að vera með - endilega komið til mín staðfestingargjaldinu,
100 evrum. Setið peninginn í umslag merkt nafni og bíl. Sendið póst á rngtoy@rngtoy.com
til að fá leiðbeiningar um hvert á að koma með umslagið.

Re: Hr. X - 2012 - dagsetningar að komast á hreint

Innsent: 02 Jún 2012, 09:58
frá bimmer
Erum að fara að ganga frá flugi þannig að nú fer hver að verða síðastur að skrá sig :)

Re: Hr. X - 2012 - dagsetningar að komast á hreint

Innsent: 06 Jún 2012, 18:02
frá bimmer
Jæja þá er þetta loksins komið á hreint, afsakið töfina!

Kallinn lendir á föstudagskvöld og verður hér að mappa
lau-sun-mán.

Ég verð í bandi við ykkur sem eruð búin að skrá ykkur til að
úthluta tímum.

Re: Hr. X - 2012 - 9. til 11. júní

Innsent: 09 Jún 2012, 14:03
frá bimmer
Allt að gerast - problemchild mætt:

[img]http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/2012/HrX/buzy.jpg[/img]

Re: Hr. X - 2012 - 9. til 11. júní

Innsent: 10 Jún 2012, 14:22
frá bimmer
Vissi að það yrði eitthvað vesen með þennan!!!! :lol:

[img]http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/2 ... rouble.jpg[/img]

Re: Hr. X - 2012 - 9. til 11. júní

Innsent: 11 Jún 2012, 15:27
frá Ásgeir Örn
bimmer skrifaði:Vissi að það yrði eitthvað vesen með þennan!!!! :lol:

[img]http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/2 ... rouble.jpg[/img]

Hvað var vesenið?

Re: Hr. X - 2012 - 9. til 11. júní

Innsent: 11 Jún 2012, 16:36
frá bimmer
Það var pínulítið gat á eldgreininni sem stækkaði all hressilega þannig
að eitt rörið losnaði alveg frá. Búið að sjóða og setja aftur í.