Síða 1 af 1

Sjálfskiptingarvesen, í C220 93

Innsent: 20 Des 2011, 14:14
frá BMW_Owner
sælir félagar heyriði ég lendi í því á benzanum hjá mér að hann snuðar aðeins á milli 3 og 4 gír, ekkert á milli hinna gíranna og þetta gerist bara þegar ég er að keyra rólega, ef ég keyri " rösklega" þá kemur ekkert, skiptir sér eðlilega. hvað haldið þið snillingarnir að sé að valda þessu?, það þarf náttúrulega ekki spyrja að því að það er nóg á skiptingunni og olían er nýleg ásamt því að það er ekki brunalykt af henni.

en þetta er já 1993 C220 ek.193þús. :Drivermanual:

Re: Sjálfskiptingarvesen, í C220 93

Innsent: 01 Jan 2012, 03:59
frá Angelic0-
Þetta fræga vacuum stillingar-atriði eða hvað það nú var... :?:

Nei, annars þekki ég ekki þessar skiptingar, þykir drifbúnaðurinn í þessum bílum ekkert til að hrópa húrra fyrir... þó að ég sé um leið hissa yfir hvað drifið í W124 hjá M-B-C entist með 383 strokerinn fyrir framan :)