Síða 1 af 1
Lega í framhjóli.
Innsent: 20 Sep 2011, 14:29
frá SGM
Hvað ber að varast þegar skipt er um framhjólalegu í M/B? Bíllinn fór í hjólastillingu og maðurinn sem vann verkið sagðist hafa hert á legu í v/framhjóli, 900. km síðar er legan hruninn. Ég keypti báðar legurnar, hvað ber helst að varast við leguskiptinn?
Re: Lega í framhjóli.
Innsent: 22 Sep 2011, 19:44
frá andrz
Þú notar aldrei of mikið af feiti. Passaðu uppá að feitin fari allstaðar á milli og alveg í gegn. Ekki ofherða leguna heldur, þá endaru með aðra ónýta tæpum 900 km síðar.
Re: Lega í framhjóli.
Innsent: 27 Sep 2011, 03:07
frá GummiSig
Umfam allt notaðu koppafeiti fyrir legur. Ég er einu sinni búinn að steikja hjólalegu með því að nota ekki nógu góða feiti.
Re: Lega í framhjóli.
Innsent: 30 Nóv 2011, 06:11
frá Benz 1113
Og svo hreinlæti ef þetta er opin lega.
Eitt ryðkorn er fljótt að eyðileggja á þessum geggjaða hraða sem legan þarf að þola.