Síða 1 af 5
Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 10:02
frá Julius Atli
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/ ... 0_prosent/" onclick="window.open(this.href);return false;
Hvað vitið þið um svona búnað? Virkar - Virkar ekki?
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 10:08
frá JBV
Ég veit um einn sem setti þetta í Ford F350 diesel. Sá maður staðhæfir að bíllinn hafi minkað eyðsluna um 30%
Væri til í að fá reynslusögur af þessum búnaði frá fleirum.
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 11:01
frá Julius Atli
já áhugaverður búnaður að mínu mati! endilega þið sem vitið eitthvað um þetta eða þekkið til þessa manna þarna á Thor Energy Zolutions, tjáið ykkur

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 11:24
frá AM
Ja thetta hljomar vIrkIlega spennandI
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 11:59
frá Ásgeir Yngvi
maður þarf þá væntanlega eitthvað vetni á bílinn?
Ég átta mig ekki alveg á þessu.
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 14:27
frá Ronny
Ásgeir Yngvi skrifaði:maður þarf þá væntanlega eitthvað vetni á bílinn?
Ég átta mig ekki alveg á þessu.
Búnaðurinn býr til vetni jafnóðum sem vélin svo sogar inn á vélina !
Það hafa margir sett heimasmíðaðan svona búnað í bíla hérna !
En þetta er flott hjá þessum gaurum !
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 14:30
frá Hlynzi
Ásgeir Yngvi skrifaði:maður þarf þá væntanlega eitthvað vetni á bílinn?
Ég átta mig ekki alveg á þessu.
Nei, þú setur vatn á bílinn og rafgreinir það um borð í bílnum og við það verður til vetni.
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 14:31
frá Hlynzi
Ég hef lesið eitthvað af þessu og væri djöfulli til í að prófa þetta. Er ekki einhver sem er til í að fórna einni V8 vél og 70 þús kalli í að prófa þetta ?
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 15:33
frá Benni
Veit um að aðilar hafi verið að prófa þetta á stærri vélum (þ.e. atvinnutækjum) og það ku hafa verið með ágætum árangri - en hef það ekki "skjalfest" svo að þetta er bara "word of mouth".
Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....
Innsent: 03 Mar 2011, 18:17
frá sveinn
Þegar ég horfði á myndskeiðið með fréttinni, þá fannst mér ég vera horfa á gott aprílgabb

...útlitið á búnaðinum og hvað þetta hljómaði vel gerðu það að verkum.
Virkilega spennandi búnaður!

...spurning hvort þetta hafi nokkuð neikvæð langtímaáhrif á vélar
