Síða 3 af 5

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 05 Mar 2011, 11:00
frá aroningi
BaraBenz skrifaði:Hvað ætli sé notað í vatnið sem á að rafgreina þegar er frost? Varla frostlögur eða rúðupiss.
Var einmitt að pæla í þessu og fann svo svarið. Sjórinn er saltur og hann frýs við -2.2°C. Í bandaríkjunum í svokallaða Death Valley eru mjög sölt vötn sem eiga að frjósa við -20°C til -30°C. Sem þýðir því meira salt sem er í vatninu því seinna frýs það.

Salt hjáplar líka rafmagni að ferðast hraðar í vatni.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 05 Mar 2011, 11:18
frá HHH
Miðað við það sem er á netinu um svipað kerfi er notaður einhversskonar basi svipað og í rafgeyminum til að koma í veg fyrir að vatnið frjósi. Alkahól er notað í "the bubbler" eða bakflæðisvörn... sjá í meðfylgjandi link;

http://www.free-energy-info.co.uk/Chapt10.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Spurningin er hvort þetta virki aðalega sem mengunar vörn frekar en sparnaður á eldsneyti... maður fær ekki eitthvað fyrir ekkert...

Menn hafa verið að láta rafmagns generator ganga á rafgreindu vatni og þeir geta varla framleitt vetni til að vera í gangi. Orkan sem fer í rafmagnsframleiðsluna notast öll/mest öll í rafgreininguna á vetninu sem síðan generator notar til að vera í gangi. Það er ekkert afgangs. Restin af orkunni fer í hita, núning i motor o.sv. frv.

Eini kosturinn sem ég sé af þessu dæmi, er breyting á bruna í vélinni og minnkun á mengun í útblæstri... sem er ekki slæmur kostur. En dæmi hver sem vill.

Kv Halli H. 8)

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 05 Mar 2011, 22:19
frá Ásgeir Yngvi
En þeir fullyrða að þetta minnki eyðslu um 30%...

Þeir fara varla að ljúga því? Það kæmi þá ansi hratt og fast aftur í bakið á þeim.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 05 Mar 2011, 23:47
frá ARG22
Ásgeir Yngvi skrifaði:En þeir fullyrða að þetta minnki eyðslu um 30%...

Þeir fara varla að ljúga því? Það kæmi þá ansi hratt og fast aftur í bakið á þeim.
Þá eru þeir bara með góðar afsakanir tilbúnar á reiðum höndum en 30% ætti að finnast strax á fyrsta tankanum en gallinn er að það þarf að mæla þetta mjög nákvæmt við svipaðar aðstæður.

þetta er svipað og hiclon þar sem fullyrt er eitt og annað en það er erfitt að sanna það því kraftaukningin er sjaldnast mæld nema með því sem mönnum finnst um hraðaaukningu og snerpu

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 08 Mar 2011, 19:16
frá Victor
ég smíðaði svona búnað í bíl einusinni, þetta var 3.5 bensín
mér fannst þetta virka ágætlega, var með 120ampera alternator, notaði c.a 20 amper, í framleiðsluna,
þegar ég var að gúggla þetta þá las ég að maður er í raun ekki að framleiða vetni, heldur Brúngas !?
ég setti líka svona í díselbíl og hann steinhætti að sóta
en mér finnst þetta nokkuð sniðugur búnaður, en að borga 65kall finst mér kannski full gróft,
held ég hafi smíðað þetta í bílana fyrir um 7.000kr hvorn

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 08 Mar 2011, 23:21
frá Baddeh
Þetta er svo gamalt svindl....

Þú getur ekki fengið meiri orku en það tekur að framleiða hana...
Segi ekki meir.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 08 Mar 2011, 23:33
frá Hlynzi
Baddeh skrifaði:Þetta er svo gamalt svindl....

Þú getur ekki fengið meiri orku en það tekur að framleiða hana...
Segi ekki meir.
Jújú, það á nú víst að heita hægt. Með kjarnasamruna.
Þeir eru að mér skilst búnir að ná að keyra út meiri orku en þeir setja inní vélina (þetta fjallar um plasma, rafgas...)

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 09 Mar 2011, 07:11
frá BaraBenz
Getur verið að þetta snúist líka svolítið um betri nýtingu á þeirri orku sem sett er inn á vélina.

230 vél með blöndung eyddi mun meira en nýrri 230 vélar með beina innspýtingu.

Er ekki talað um að vél nýti einungis um 30% af þeirri orku sem er í eldsneytinu.

70% tapist með afgasi ,varmatapi og fl.

Í mörgum skipum er kælivatnshiti notaður til að eima vatn áður en kælivatnið er látið fara frá borði um 60-70° C heitt (vatn sýður við lægra hitastig við undirþrýsting). Sem sagt orkan nýtt betur áður en hún fer í sjóinn.

Einhvern tíma voru menn að láta vélar soga inn á sig vatn blandað tréspíra.

Tréspírinn (methanol) var til þess að vatnið safnaðist ekki í dropa við snertingu á heitum flöt eins og þegar þú missir vatn á eldavélarhellu. Ég veit að þetta virkaði.

Það var breyting (rúmmálsaukning) vatns í gufu sem gaf mönnum aukna orku.

Þarna var eingöngu verið að nota eðlisfræðina. Nota betur þá orku sem er til staðar en nýtist ekki að öðrum kosti.

Ég vill nú ekki alfarið blása það af að þetta sé ekki til einhverra bóta, t.d. í betri bruna. En ef þetta gefur svona góða raun og hefur verið lengi til þá finnst mér merkilegt að Mercedes Benz sé ekki með þetta í bílunum sínum.

Þeir hafa jú alltaf verið í fremstu röð með nýjungar í eldsneytisnýtingu.

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 09 Mar 2011, 08:31
frá Benni
BaraBenz skrifaði: Ég vill nú ekki alfarið blása það af að þetta sé ekki til einhverra bóta, t.d. í betri bruna. En ef þetta gefur svona góða raun og hefur verið lengi til þá finnst mér merkilegt að Mercedes Benz sé ekki með þetta í bílunum sínum.

Þeir hafa jú alltaf verið í fremstu röð með nýjungar í eldsneytisnýtingu
.
Sammála síðasta ræðumanni!

Re: Vetnisbúnaður sem minnkar eyðslu um 30%....

Innsent: 09 Mar 2011, 19:08
frá olafur_
Einn vinur minn spurði mig nú hvort ég hefði heyrt um þetta og ég sagðist hafa gert það hérna inná.
Hann sagði að þessi umræða væri líka á http://www.live2cruize.com" onclick="window.open(this.href);return false; og að þetta væri algjör vitleysa og eins og einn sagði hérna inná búið að vera til í bandaríkjunum.
Hann sagðist líka hafa lesið eitthvað og þetta virki engan vegin þegar kemur að því að bíllinn eyði minna og skili meiri krafti en minntist ekkert á hvort það gerði eitthvað sambandið við mengun og það hefðu nú nokkrir bandaríkjamenn verið kærðir fyrir þetta.
Þá voru þeir búnir að borga fólki til að segja að þetta virkaði og þannig.
Menn sem rannsökuðu málið hittu fólkið sem þeir voru búnir að borga fyrir að segja að þetta virkaði og hver einasta manneskja sagði að þetta virkaði nákvæmlega ekki neitt og voru allir búnir að rífa þetta úr bílnum sínum. Bara ein manneskja svaraði ekki, og kom nú í ljós að það væri eiginkona hans :D .
En þetta er náttúrulega bara það sem ég hef heyrt um þetta frá honum, hlakkaði sjálfum alveg skelfilega til að fá að prufa þetta en varð fyrir svolitlum vonbrigðum þegar ég heyrði þetta :(