Síða 1 af 1
Flautandi 123 fáráður
Innsent: 02 Mar 2011, 22:36
frá 280E
Kvöldið.
123 bíll hefur upp raust sína og flautar ógurlega þegar svissað er á bílinn. Reif af honum stýrið, ekkert að sjá ljótt þar.
Er þetta kunnuglegt vandamál?
Kveðja, Hjörleifur.
Re: Flautandi 123 fáráður
Innsent: 06 Mar 2011, 13:19
frá Ztebbsterinn
280E skrifaði:Kvöldið.
123 bíll hefur upp raust sína og flautar ógurlega þegar svissað er á bílinn. Reif af honum stýrið, ekkert að sjá ljótt þar.
Er þetta kunnuglegt vandamál?
Kveðja, Hjörleifur.
Er hann með tvívirka flautu? (rofi í mælaborði til að skipta á milli).
Annars hef ég ekki heyrt af þessu áður.
Ég er nokkuð viss um að rofinn í stýrinu leiðir jörð svo það er spurning hvort að lögnin lyggji einhverstaðar utaní.
Re: Flautandi 123 fáráður
Innsent: 06 Mar 2011, 13:36
frá Gizmo
ég hef séð þetta gerast ef stefnuljósarofinn losnar, þá getur hann leitt jörð uppí flautuhringinn. Ef þú lyftir gúmmíhlífinni frá stefnuljósastönginni þá sérðu 2 litlar skrúfur sem halda þessu föstu.
Re: Flautandi 123 fáráður
Innsent: 13 Apr 2011, 13:33
frá 280E
Flautan sjálf náði í jörð í boddyinu. Nú gúmmífóðring, málið dautt.
Kv, Hjörleifur.