Síða 1 af 1

Skipting 123 300D

Innsent: 27 Des 2010, 19:35
frá 280E
Kvöldið.

Er að gera upp '79 300D 123. Skiptingin er haugslitin, lengi að taka bakk og snuðar lítillega milli þrepa. Hún skal þó duga framan af. Pikkrofinn undir inngjöfinni er ónýtur en annað er verra, hún skiptir sér einkennilega hratt upp, sérstaklega milli annars og þrjiðja þreps. Hef skipt um vökva og síu og hún liðkaðist dulítið upp en ég velti fyrir mér hvort hægt sé að stilla hana skárri?

Kveðja, Hjörleifur.

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 28 Des 2010, 01:12
frá hjalti.g
:offtopic: Ekki það að ég hafi einhver svör handa þér Hjörleifur minn :? , en ég er að farast úr spenningi að fá að frétta og sjá árangurinn hjá þér með þennan mola :-D

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 28 Des 2010, 01:48
frá 280E
Sæll.

Það er nú einmitt það sem hann er að verða.. Moli.

Tek myndir, geri þráð þegar steðjanúmerin eru komin á stuðarana.

H

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 28 Des 2010, 09:47
frá Þröstur
280E skrifaði:Kvöldið.

Er að gera upp '79 300D 123. Skiptingin er haugslitin, lengi að taka bakk og snuðar lítillega milli þrepa. Hún skal þó duga framan af. Pikkrofinn undir inngjöfinni er ónýtur en annað er verra, hún skiptir sér einkennilega hratt upp, sérstaklega milli annars og þrjiðja þreps. Hef skipt um vökva og síu og hún liðkaðist dulítið upp en ég velti fyrir mér hvort hægt sé að stilla hana skárri?

Kveðja, Hjörleifur.
Er þessi bíll með vacum rofa ofan á ventlalokinu eða pikkstöng??

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 02 Jan 2011, 22:02
frá 280E
Vacum var það heillin..

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 02 Jan 2011, 23:22
frá Þröstur
Það er lítill armur inni í þessum vakum búnaði sem ýtir á ventilinn, þessi armur átti til að slitna þannig að skiptingin varð hundleiðinleg.

Re: Skipting 123 300D

Innsent: 13 Apr 2011, 13:31
frá 280E
Daginn.
Skiptingin fer óðum batnandi eftir því sem hún er brúkuð svo ég ætla að láta vaða á að skipta aftur um vökvann áður en hún verður stillt upp. Ég setti nýja síu þegar ég skipti um vökvann í fyrra skiptið, teljið þið nauðsyn á því að skipta aftur í þetta sinn?

Takk,

Hjörleifur.