Síða 1 af 1

Lesið þetta

Innsent: 14 Nóv 2009, 20:49
frá Loki
http://www.duramax-diesel.com/spicer/index.htm" onclick="window.open(this.href);return false;

"Compared to the best paper filter, the K&N “plugged up” nearly 3 times faster, passed 18 times more dirt and captured 37% less dirt."

Niðurstaðan:
K&N gefur aðeins meira loftflæði rétt til að byrja með en verður fljótlega þéttari en pappasía.
K&N síar alltaf illa.

Það er ástæða fyrir því að margt aftermarket glingur er aldrei í boði hjá framleiðendum.

ps
Þegar ég sé auglýsta bíla "með Hiclone og K&N síu" þá les ég ósjálfrátt:
"eigandinn er vanviti og vélin hefur japplað á mikilli drullu"

Góðar stundir.

Re: Lesið þetta

Innsent: 15 Nóv 2009, 08:54
frá hr.annar
Við skulum ekki gleyma því að flestar pappasíur eru ekki frá sama framleiðanda og bíllinn þannig að þær eru aftermarket drasl bara án glingursins.

Það er lítið mál að þrífa K&N síu og ætti að gera með reglulegu milli bili.

Bílaiðnaðurinn í heiminum þrífst á því að hann sé stútfullur af drasli sem þarf að skipta um sem oftast helst hjá viðukenndum þjónustuaðila.
Það hagnast enginn bílaframleiðandi á því að selja þér bíl sem aldrei bilar og þú getur viðhaldið sjálfur.
Þetta vita allir sem hafa einhvertíma keypt eitthvað.

Það má ekki skilja sem svo að ég sé einhver K&N nut en hugmyndin að síu sem hægt er að þrífa án þess að kaupa nýja er algjör snilld.

Svo má alls ekki blása úr pappasíum þá fyrst eyðileggjast þær!

Re: Lesið þetta

Innsent: 15 Nóv 2009, 13:05
frá Gizmo
Já þetta er ömurlegur heimur, en þið báðir gætuð bætt hann helling með því að skrifa undir fullu nafni eins og siðaðir menn.

Re: Lesið þetta

Innsent: 15 Nóv 2009, 13:59
frá Loki
Ekki átti ég von á að þetta innlegg þróaðist í umræður um ömurleika heimsins!

Bendi hr.annari á að engir bílaframleiðendur framleiða loftsíur, þeir kaupa þetta frá e-h sem sérhæfa sig í slíkri framleiðslu.

Þessi umræða er almenns eðlis og ég fæ ekki séð hvaða máli skiptir hver hóf umræðuna, gögnin http://www.duramax-diesel.com/spicer/index.htm" onclick="window.open(this.href);return false; tala sínu máli.

Mér fróðari menn hafa ráðlagt mér að kaupa síur frá MANN og Kneikt sem ma annars fást á þokkalegu verði hjá AP.

Mér reyndist vel í jöklaakstri á blöndungsjeppum að fjarlægja loftsíuna þegar komið var í ryklaust, sterílt umhverfi. Ég þreif þá hreinsaratunnuna með wd 40 og tvist. Smá skafrenningur er bara til aflaukningar..... Ég taldi mér trú um að þetta ynni e-h á móti lækkuðum loftþrýstingi.

Re: Lesið þetta

Innsent: 16 Nóv 2009, 20:35
frá Killerboot
Ástæðurnar fyrir því að ég mundi ekki nota svona k&n síu ótilneyddur eru:

1. Þær eru rándýrar.
2. Venjuleg sía dugar allveg helling og kostar ekki það mikið.
3. Olían sem er notuð til að þrífa k&n síurnar eyðileggur loftflæðiskynjara.
4. Ég hef keyrt sama bílinn með og án k&n síu og ég fann engan mun á krafti.

Re: Lesið þetta

Innsent: 18 Nóv 2009, 19:12
frá Olbogi
Killerboot skrifaði:Ástæðurnar fyrir því að ég mundi ekki nota svona k&n síu ótilneyddur eru:

1. Þær eru rándýrar.
2. Venjuleg sía dugar allveg helling og kostar ekki það mikið.
3. Olían sem er notuð til að þrífa k&n síurnar eyðileggur loftflæðiskynjara.
4. Ég hef keyrt sama bílinn með og án k&n síu og ég fann engan mun á krafti.
Þegar ég var að læra í Borgarholtsskóla prófuðum við að dino mæla corollu með 1600 mótor með venjulegri pappa síu, svo k&n og svo engri síu og það kom nánast það sama út í öll skiptin ( allt undir 0,1hp í aflaukningu sést ekki)

kanski kom þetta svona út þar sem báðar síurnar voru nýar

Re: Lesið þetta

Innsent: 18 Nóv 2009, 19:49
frá Benzari
Olbogi skrifaði:
Þegar ég var að læra í Borgarholtsskóla prófuðum við að dino mæla corollu með 1600 mótor með venjulegri pappa síu, svo k&n og svo engri síu og það kom nánast það sama út í öll skiptin ( allt undir 0,1hp í aflaukningu sést ekki)

kanski kom þetta svona út þar sem báðar síurnar voru nýar
Góður punktur.
Ekkert skrýtið að bíll eyði minna og/eða smá aflaukning finnist þegar skipt er út handónýtri pappasíu.