Síða 1 af 1
M B 140
Innsent: 14 Júl 2009, 23:48
frá emma1
Er með 6cyl S klassa bíl árg 92 er að vandræðast með að vélin gengur of hratt. Getur ekki einhver góður maður frætt mig á hvaða kerfi það er sem kemur á knastásinn við hlið þess sem er með kveikjuna.

Re: M B 140
Innsent: 14 Júl 2009, 23:55
frá Ztebbsterinn
Ef þetta er eins og í þeim gömlu, þá er þetta væntanlega dæla fyrir dempara kerfið að aftan (ef svoleiðis er í bílnum).
Re: M B 140
Innsent: 15 Júl 2009, 00:05
frá emma1
Nei þetta er rafmagns væntanlega skynjari einhverskonar
Re: M B 140
Innsent: 15 Júl 2009, 15:37
frá emma1
Önnur spurning sem kemur sennilega oft með Benz á þessum aldri. Er möguleiki að fá aðalrafmagnskaplanna inná vélina frá öðrum en umboði.
Re: M B 140
Innsent: 17 Júl 2009, 00:34
frá Gizmo
Þetta er segulrofinn fyrir breytinguna á knasttímanum sem þú sérð þarna.
Orginal er sennilega eini staðurinn fyrir rafkapla á þessar vélar. Láttu kaupa þetta fyrir þig í USA og bera heim, ég held að þú þyrftir aðstoð fagfólks ef þú spyrð um svona gull í Umb. í dag...
Re: M B 140
Innsent: 17 Júl 2009, 00:39
frá Mercedes-Benz
emma1 skrifaði:Önnur spurning sem kemur sennilega oft með Benz á þessum aldri. Er möguleiki að fá aðalrafmagnskaplanna inná vélina frá öðrum en umboði.
Kaupa vírspotta og rafmagnstengi og búa þetta til... Ég er að fara að gera það í tveim bílum.
Re: M B 140
Innsent: 17 Júl 2009, 13:10
frá emma1
Ég er á Spáni og í umboðinu hér kostar kapallinn 750-800€

en ég hef verið að reyna að einangra þetta uppá nýtt en einangrunin er farinn alveg uppí plögg og sum af þessum plöggum molna bara í höndunum á manni. Hitinn hér hjálpar náttúrulega ekki.
Re: M B 140
Innsent: 17 Júl 2009, 15:13
frá Gizmo
þetta er ónýtt í nær öllum þessum bílum. Því meira sem þú kemur við það því verra verður þetta.
Ég bjó til rafkerfi í minn bíl og það er ekkert svakalegt mál en þú þarft ca 30-40 mislita víra, öll tengi og góða krumptöng. Ég reif kerfið úr, negldi það á tréplötu og skipti svo um einn í einu.
Re: M B 140
Innsent: 19 Júl 2009, 13:10
frá emma1
Takk fyrir þetta. En er hægt að kaupa tengin ein og sér.
Re: M B 140
Innsent: 28 Júl 2009, 21:49
frá Gizmo
Já alveg örugglega. Reyndu líka að athuga allar partasölur, hef grun um að þetta passi milli S E og C bílanna með þessari vél og það hljóta að lenda í klessu bílar sem búið er að skipta um þetta í.