Síða 1 af 1
4 matic í w124
Innsent: 23 Mar 2009, 14:21
frá Gummi Kei
bróðir minn á 300d turbo 4 matic,
það sem er að er að 4matic búnaðurinn er að stríða honum, það byrjaði með því að ljósið fyrir það fór að blikka þótt hann væri ekkert að fara í framdrifið, og svo núna logar það bara og honum finnst hann heyra tikk í einhverju relyi einhversstaðar hægramegin frammí honum, einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að?
og er sama olíupanna á 4matic bílum og non-4matic?
Re: 4 matic í w124
Innsent: 23 Mar 2009, 20:41
frá Geirinn
prófaðu að fá upplýsingar um að núlla 4matic tölvuna, það er gert í boxi hægra megin í húddinu, man ekki eins og páfagaukur hvaða póla á að leiða saman og hvað lengi.
en þetta með olíupönnuna, ég er ekki viss um að 300D hafi komið original með 4matic en ég veit um einn sem setti dísel mótor í 3004matic bensín og þá þurfti hann að breyta pönnunni til svo að mótorinn kæmist ofaní, gæti verið sá bíll.
síðan held ég að gott ráð sé bara að forðast 4matic
Re: 4 matic í w124
Innsent: 23 Mar 2009, 21:50
frá Benni
Geirinn skrifaði:prófaðu að fá upplýsingar um að núlla 4matic tölvuna, það er gert í boxi hægra megin í húddinu, man ekki eins og páfagaukur hvaða póla á að leiða saman og hvað lengi.
en þetta með olíupönnuna, ég er ekki viss um að 300D hafi komið original með 4matic en ég veit um einn sem setti dísel mótor í 3004matic bensín og þá þurfti hann að breyta pönnunni til svo að mótorinn kæmist ofaní, gæti verið sá bíll.
síðan held ég að gott ráð sé bara að forðast 4matic
300D og 300D Turbo voru fáanlegir original með 4matic

Re: 4 matic í w124
Innsent: 23 Mar 2009, 22:46
frá Andrinn
Gummi Kei skrifaði:og er sama olíupanna á 4matic bílum og non-4matic?
nei það er ekki sama olípanna í þessum bílum þar sem að frammdrifið er neðsti parturinn af olíupönnunni og botninn á þessum bílum er líka öðruvísi