Síða 1 af 1

E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 13:21
frá speedy
Sælir ég er hamingju samur Benz eigandi enn það sem er að skyggja á þá hamingju þessa dagana að hann vill ekki fara í gang.

Vandamálið er það að bíllinn statar enn hann ræsir ekki bensíndæluna og virðist ekki neista heldur. ég er búinn að skipta um relay fyrir bensíndæluna og einig er ég búinn að skipta um swissbotn. ég er pínu ráþrota þessa stundina og vill að sjálfsöguð fara komast út að keyra á vagninum. Þekkir einhver þetta vanda mál sem að ég er að glíma við?

Kv.Hafþór
8573000

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 14:25
frá Geirinn
ég skal kaupa hann af þér þá þarftu ekki að þekkja þetta vandamál ;)

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 14:42
frá speedy
Hann er ekki til sölu. :cheers:

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 16:24
frá E-cdi
ég skal skipta við þig á allveg eins bíl og þá ertu laus við þetta vandamál ;)

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 18:32
frá speedy
Fannar Takk enn nei takk hann er kominn í Gang.........

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 18:50
frá E-cdi
speedy skrifaði:Fannar Takk enn nei takk hann er kominn í Gang.........
hver er :D

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 22 Feb 2009, 20:59
frá Hlynzi
Ég er nokkuð viss um að þú hefur opnað bílinn ekki með fjarstýringunni og mótorlæsingin ennþá virk...

Hef lent í þessu líka, út úr bílnum, læsa og opna og hann rauk í gang.
Snilldar þjófavörn.

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 23 Feb 2009, 01:44
frá speedy
ég skipt um relay sem að er staðsett hliðiná bensíndælu relayinu og þá rauk kvikindið í gang og Allir vinir.

Re: E220 1994 fer ekki í Gang þekkir eitthver þetta vandamál?

Innsent: 23 Feb 2009, 20:47
frá andrz
speedy skrifaði:ég skipt um relay sem að er staðsett hliðiná bensíndælu relayinu og þá rauk kvikindið í gang og Allir vinir.
Stórt silfrað relay með öryggi í? Það er yfirspennu rafliðinn.