Síða 13 af 22

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 21:05
frá Þröstur
Maður skammast sín fyrir að tilheyra sömu dýrategund og fólk sem gerir svona. Ég skal taka sætin úr og taka þau í sundur og setja þau svo saman og í bílinn þegar búið er að gera við þau, þér að kostnaðarlausu. Það er yfirleitt bara til að ergja mann meira að reyna að ná einhverju út úr þeim sem fremja svona.

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 21:06
frá Thrullerinn
Ömurlegt, aldrei séð eins ljót skemmdarverk :(

..og ekkert úr tryggingunum, sé að númerin ekki á bílnum.

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 21:40
frá Ólafur Þ.
Svakalega er fólk ósátt við lífið............ Ég veit hreinlega ekki hvað ég myndi taka til ráðs ef einhver kæmi svona fram við minn E420.

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 22:21
frá gmg
Samúðarkveðjur Reynir, ég get ekki sagt neitt meira ( er fullur af reiði og veit ekki hverju ).




"#$%#$&#$%$%&/$$/(%&)&/()%$%"#%$"#$%"%&%&(%&/)

( tölvublót bara ) :evil: :evil: :evil: :evil: :evil:

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 22:27
frá haukurbenz
Þetta er alveg hryllingur, eins fallegur bíll og þetta er..

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 22:32
frá Björgvin B
Hörmulegt að lenda í þessu ! Vonandi að þessir aðilar finnist.

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 22:59
frá AM
Ég er alveg orðlaus. Færð alla mína samúð...... Vonandi að þeir náist :realmad: :realmad:

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 27 Jan 2011, 23:34
frá ARG22
Það er greinilega til nóg af hálfvitum hér á landi, hefur alla mína samúð :cry:

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 28 Jan 2011, 01:38
frá Balli...
svoldið skrítið að engu var stolið :shock: það var greinilega brotist inn bara til þess að skemma bílinn. en djövull er að sjá þetta! maður verður reiður a þvi að skoða þessar myndir!! :evil:

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!

Innsent: 28 Jan 2011, 08:36
frá Ásgeir Örn
Andskotinn hvað þetta er illa gert og að skera svona á sætin! Ég er algerlega orðlaus!