Síða 12 af 22
Re: w124 - E420
Innsent: 27 Jan 2011, 11:24
frá Reynir Ari
Það var brotist inn þar sem benzin er geymdur í nótt, gengið beint að honum og hann skemmdur. Engu var stolið og ekkert annað var skemmt!
Stjarnan tekin af húddinu:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0117.jpg[/img]
Hægri hliðin rispuð:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0118.jpg[/img]
Toppurinn rispaður:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0120.jpg[/img]
Farþega sætið skemmt:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0121.jpg[/img]
Bílstjóra sætið skemmt:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0122.jpg[/img]
Skottlokið rispað:
[img]
http://i276.photobucket.com/albums/kk27 ... AG0123.jpg[/img]
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 11:52
frá Benni
Hvur andskotinn
Verst að þetta andskotans pakk sem gerir svona er aldrei borgunarfólk til þess að greiða fyrir það sem það skemmdi

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 12:18
frá Logi

Þetta er alveg ömurlegt að sjá

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 12:21
frá JBV
Þvílík ömurlegheit

Þú átt alla mína samúð Reynir Ari.
Vonandi nást þeir sem tjóninu ollu - og eru vonandi borgunarmenn fyrir skemmdunum.
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 12:23
frá Hlynzi
Hvaða djöfulsins fífl hefur eiginlega gert þetta ??
Var bíllinn í skúrnum heima bara ?
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 19:10
frá Benzari
Þetta er hræðilegt, samhryggist.
Einhverjar eftirlitsmyndavélar í grenndinni?
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 19:46
frá Julius Atli
svona hyski á að hýða 2.sinnum i viku á Lækjartorgi!!!
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 20:22
frá Ásgeir Yngvi
maður er bara orðlaus !
Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 20:35
frá Mercedes-Benz

Bíddu...... Hvað er að svona pakki. ???? Mikið hrikalega eru menn orðnir bilaðir......!!!!!

Re: w124 - E420 - SKEMMDARVERK!
Innsent: 27 Jan 2011, 20:51
frá sveinn

Ég verð nú bara að viðurkenna að ég þurfti að standa upp og labba frá tölvunni eftir að hafa séð þessar myndir. Ekki það að ég taki endilega mál annara svona nærri mér, heldur fer svona lagað bara svoooo... í taugarnar á mér! Ég þekki aðeins reiðina sem maður fær ekki útrás fyrir þegar maður verður fyrir einhverju svona. Það þarf ekki annað en að brjóta stjörnuna af húddinu hjá mér til að vekja upp þvílíka reiði hjá mér og nauðgunartilfinningu að það bókstaflega sýður á mér!
Þú átt alla mína samúð Reynir Ari og ég vona svo sannarlega að þessir aular náist!