Síða 4 af 5
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Okt 2010, 18:59
frá BjörgvinS
Þessi er verulega flottur hjá þér Sveinn, mér finnst þetta koma vel út að hafa hvítt stýri.
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Okt 2010, 22:56
frá Ásgeir Örn
Já þetta passar rosalega vel við bílinn.
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Okt 2010, 23:07
frá Benzari
Sammála, kemur vel út.
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Okt 2010, 23:23
frá JBV
Mikill sjarmi yfir þessu beinhvítastýri. Vona bara að airbag-inn poppi ekki útúr því þá og þegar vegna misskilnings.

Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 13 Okt 2010, 09:59
frá AM
Sammála . Kemur betur út svona.
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 13 Okt 2010, 23:49
frá sveinn
Já, þetta er farið að venjast aðeins. Svolítið skrítið reyndar að horfa á þetta svona útundan sér þegar maður er að keyra...

Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Feb 2011, 23:51
frá sveinn
Var aðeins að duna mér í þessum í dag.
Það er búið að fara í taugarnar á mér í dálítinn tíma að hurðaspjöldin í bílnum eru dökk-blá á meðan innréttingin sjálf er svört. Það hefur svo sem ekki mikið borið á þessu, en í ákveðinni birtu sést þetta og hefur pirrað mig. Þegar ég fékk bílinn var hann reyndar með rauðum framsætum, svörtum afturbekk, bláum hurðaspjöldum og ljós-brúnum rósóttum gólfteppum. Ég tók hann fljótt í gegn að innan, en þessi dökk-bláu hurðaspjöld urðu af einhverjum ástæðum eftir. Eitthvað svona sem gleymdist.
Þessu bætti ég úr í dag og reif öll hurðaspjöldin úr og sprautaði svört. Allt annað að sjá þetta og eitthvað sem var löngu tímabært...
Blátt hurðaspjald og brúnt handfang...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold1.jpg[/img]
Spjöldin tekin af
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold2.jpg[/img]
Blátt spjald (reyndar búið að sprauta þarna ofan í vasann)
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold3.jpg[/img]
Spjald orðið svart
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold4.jpg[/img]
Komið á sinn stað
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold5.jpg[/img]
Allt annað að sjá þetta...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/R222/hurdaspjold6.jpg[/img]
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 12 Feb 2011, 23:57
frá gmg
Allt annað að sjá, hlakka til að koma í R-222 næst !
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 13 Feb 2011, 13:08
frá HAMAR
Re: Mercedes-Benz 190Dc 1964
Innsent: 11 Maí 2011, 22:29
frá sveinn
Miðstöð, 2371 kallar, geturðu gefið mér samband við ...
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1264580/misc/simi.jpg[/img]
Jaaahá, svona er nú tæknin í dag
